Sérstakt hve áköf umræðan um laun sveitarstjóra sé orðin Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 22. júlí 2022 13:00 Stór hluti greiðslunnar sem Aldís fékk við starfslok frá Hafnarfjarðarbæ var vegna sumarleyfis sem hún hafði ekki tekið út. vísir/vilhelm Aldís Hafsteinsdóttir, nýr sveitarstjóri Hrunamannahrepps, segir það hverrar sveitarstjórnar fyrir sig að ákveða hvort biðlaun sveitarstjóra falli niður séu þeir ráðnir í nýtt starf. Sjálf fékk hún tæpar 17 milljónir greiddar frá Hveragerði við starfslok sín í byrjun sumars vegna biðlauna og launatengdra gjalda og þiggur nú laun frá Hrunamannahreppi.
Aldís, sem er einnig formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var ráðinn sem nýr sveitarstjóri Hrunamannahrepps í sumar og hóf störf sín fyrir sveitarfélagið í gær. Þar er hún með tæpa 1,8 milljón á mánuði. Á síðasta kjörtímabili var hún bæjarstjóri Hveragerðis en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að hún hefði fengið eingreiðslu frá bænum upp á tæpar 17 milljónir króna vegna starfsloka sinna. „Það sem kom til útborgunar vegna bæði þessara biðlauna í sex mánuði og uppgjörs á orlofi voru 8,2 milljónir. Og inni í því er uppgjör á sumarfríi sem er tveir og hálfur mánuðir,“ segir Aldís. Hún hafi átt inni allt sumarfrí sitt í ár og þónokkra daga frá síðustu árum - samtals um tvo og hálfan mánuð. Þingmenn geta misst biðlaun Þegar horft er til biðlauna þingmanna þá fá þeir ýmist greidd laun í þrjá til sex mánuði eftir starfsaldri en ef þeir ráða sig í annað starf á því tímabili dragast þær tekjur sem þeir hljóta þar frá biðlaununum frá ríkinu. Spurð hvort það sé eðlilegt að sveitarstjórar haldi öllum biðlaunum sínum þegar þeir eru komnir í ný störf segir Aldís: „Ég held að það sé afar fátítt ef að biðlaun sveitarstjóra detti niður þó að þeir fari í annað starf en auðvitað er það eitthvað sem hver sveitarstjórn þarf að gera upp við sig þegar hún ræður sinn sveitarstjóra.“ Umræðan nú sérstök Hún segir að almennt séu sveitarstjórar á ágætislaunum á Íslandi. „En ég held að það sé rangtúlkun á staðreyndum að sveitarstjórar séu á einhverjum ofurlaunum. Og þessi réttindi sem sveitarstjórar hafa vel flestir - þetta er eitthvað sem sveitarfélagið semur um við þá og þetta er ekkert ólíkt því sem er samið um á hinum almenna markaði,“ segir Aldís. Umræða um laun sveitarstjóra dúkkar upp á fjögurra ára fresti þegar ný kjörtímabil hefjast. Aldís man þó ekki eftir því að hún hafi áður verið eins „áköf og núna sem er pínulítið sérstakt og þá sérstaklega í ljósi þessarar launaþróunar sem hefur verið á Íslandi undanfarin ár. Og það eru bara margir á Íslandi komnir nálægt þessum launum án þess að það sé að rata í fjölmiðla með þeim hætti sem laun sveitarstjóra gera,“ segir hún. „Í hvert skipti sem sveitarstjóri skrifar undir starfssamning núna þá kemur það í fréttunum. Og það er kannski bara eðlilegt í ljósi gagnsæis og opinberrar umræðu. En fólk verður að gæta að því við hvað það miðar þegar það er að fara í þessa umræðu.“ Í því samhengi bendir hún til dæmis á samanburð sem oft er gerður um það þegar laun sveitarstjóra eru borin saman við íbúafjölda sveitarfélagsins. Sveitarstjórar smærri sveitarfélaga eru nefnilega oft á meðal þeirra hæst launuðu á landinu en þar bendir Aldís á að í þeim hafi sveitarstjórarnir oftar en ekki mun fleiri verkefni og skyldur á sinni könnu en sveitarstjórar stærri sveitarfélaga, sem hafi yfir fleira starfsfólki og umfangsmeiri stjórnsýslu að ráða.
Kjaramál Hrunamannahreppur Hveragerði Sveitarstjórnarmál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Rangt að leggja umræðuna upp að sveitarstjórar séu afætur á íslensku samfélagi Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að laun sveitarstjóra í landinu skeri sig ekki úr þegar litið er til launa stjórnenda í millistórum fyrirtækjum. Hún segir rangt að leggja umræðuna upp á þann veg að sveitarstjórar séu verklausir og afætur á íslensku samfélagi. Það sé alls ekki raunin. 24. júní 2022 08:58 Aldís verður sveitarstjóri í Hrunamannahreppi Aldís Hafsteinsdóttir mun taka við sem sveitarstjóri Hrunamannahrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu frá D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra. 20. maí 2022 21:23 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Rangt að leggja umræðuna upp að sveitarstjórar séu afætur á íslensku samfélagi Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að laun sveitarstjóra í landinu skeri sig ekki úr þegar litið er til launa stjórnenda í millistórum fyrirtækjum. Hún segir rangt að leggja umræðuna upp á þann veg að sveitarstjórar séu verklausir og afætur á íslensku samfélagi. Það sé alls ekki raunin. 24. júní 2022 08:58
Aldís verður sveitarstjóri í Hrunamannahreppi Aldís Hafsteinsdóttir mun taka við sem sveitarstjóri Hrunamannahrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu frá D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra. 20. maí 2022 21:23