Við skulum í þessari umfjöllun kalla annan forstjórann en hinn yfirmanninn. Og þótt sumum finnist það hljóma skringilega að erfið staða geti komið upp hjá starfsfólki vegna þeirra, er staðreyndin sú að þetta er staða sem svo sannarlega getur komið upp.
Og á sér margar birtingamyndir.
TIl dæmis þegar forstjórinn baktalar yfirmanninn eða yfirmaðurinn forstjórann.
Eða forstjórinn biður þig um að gera eitthvað, án vitundar yfirmannsins. Eða öfugt.
Svo ekki sé talað um þegar forstjórinn trúir þér fyrir upplýsingum en tekur fram að yfirmaðurinn þinn eigi ekki að fá þessar upplýsingar. Eða öfugt.
Kannist þið við þetta?
Í umfjöllun Harvard Business Review líkir sérfræðingur sem rætt er við, þessari stöðu sambærilegri og þegar að börn lenda í því að vera á milli foreldra sinna þegar þau eru að rífast.
Þetta er staðan þar sem okkur svo sannarlega finnst við vera á milli steins og sleggju.
En hér eru nokkur ráð sem geta hjálpað.
#1. Þegar forstjórinn biður þig um eitthvað, án vitundar yfirmannsins
Þegar að þessi staða kemur upp er best að vera hreinskilin(n) strax. Þetta er erfið staða en þarna er hægt að milda aðstæður með því að benda forstjóranum á að þarna er verið að setja þig í erfiða stöðu.
Og þetta er erfið staða að vera í. En þér mun örugglega líða enn verr ef þú fylgir verkefninu eftir og ert þar með farinn að fara á bakvið yfirmanninn þinn. Betra er að benda forstjóranum á það strax í upphafi að þér finnist þetta óþægileg beiðni.
#2. Forstjórinn segir þér eitthvað sem yfirmaðurinn má ekki vita (eða öfugt)
Auðvitað getur þetta átt við eðlilegt trúnaðarsamband. Til dæmis ef viðkomandi er í spjalli að trúa þér fyrir því að þau hjónin eigi von á barni en það sé ekki orðið opinbert.
En þegar upplýsingarnar eru vinnutengdar er komin upp flókin staða. Því ef eitthvað fréttist, er í ofanálag mjög líklega hægt að rekja ,,lekann“ til þín.
Hérna er mælt með því að leggja áherslu á að hlusta vel og spyrja spurninga. Því oft enda rökræður með því að ákveðið er að upplýsingunum skuli deila með fleirum og/eða að það geti haft of neikvæðar afleiðingar ef málin eru ekki rædd meðal fleiri.
#3. Þegar forstjórinn og yfirmaðurinn eru að rífast/deila
Sú staða getur líka reynst starfsmönnum erfið þegar forstjórinn og yfirmaðurinn eru ekki á sama máli um eitthvað og þær deilur fara ekki framhjá neinum eða þér er trúað fyrir þeim.
Ef þú ert ein(n) í aðstæðunum er mælt með því að benda á hið augljósa: Menn séu greinilega ekki sammála, en mæla síðan með því að sérfundur verði haldinn um málefnið og fleiri dregnir að borði til að ræða málin.
Í alla staði er mælt með því að þú takir ekki afstöðu. Þótt þig langi til þess. Því í raun veistu aldrei hvernig það mál gæti endað fyrir þig.
Ef sú staða mögulega kemur upp að þú þarft að taka afstöðu, er að minnsta kosti mjög mikilvægt að þú takir þér þinn tíma í að velta fyrir þér hver sú afstaða er og hvaða afleiðingar sú afstaða gæti haft.
Eins er mikilvægt að þú standir á þínum mörkum þannig að sú staða komi aldrei upp að forstjórinn eða yfirmaðurinn fari yfir þau gildi sem þú sjálf(ur) hefur.