Leið til að lækka matvælaverð Ólafur Stephensen skrifar 30. ágúst 2022 11:30 Miklar hækkanir hafa orðið á útboðsgjaldi, sem matvöruinnflytjendur þurfa að greiða til að fá að flytja inn matvæli frá ríkjum Evrópusambandsins án tolla. Þetta kemur fram í yfirliti sem matvælaráðuneytið hefur birt um niðurstöður síðasta útboðs á tollkvóta fyrir búvörur frá ESB, en tollkvóti er heimild til að flytja inn tiltekið magn vöru án tolla. Þannig hækkar útboðsgjald fyrir nautakjötskvóta um 204 krónur á kíló frá síðasta útboði í apríl, eða um 58,8%. Hækkun á tollkvóta fyrir svínakjöt er 179 krónur á kíló, eða 55,8% og kvóti til að flytja inn lífrænt ræktaðan kjúkling hækkar um 133 krónur kílóið, eða um 49,6%. Þessar hækkanir útboðsgjalds valda væntanlega hækkun á útsöluverði þessara vara, til viðbótar við þær hækkanir sem orðið hafa á evrópskum búvörumarkaði undanfarin misseri, og bæta þannig í verðbólguna. Hækkanirnar eiga sér jafnframt stað þótt nú sé á ný viðhaft svokallað jafnvægisútboð, sem átti að stuðla að lækkun útboðsgjalds og verða þannig neytendum til hagsbóta. Félag atvinnurekenda telur að endurskoða verði fyrirkomulag úthlutunar tollkvóta til að tryggja að innflutningsverslun og neytendur njóti þess ávinnings af tollasamningi Íslands og ESB, sem upphaflega var stefnt að; að matvælaverð myndi lækka. Í núverandi verðbólguástandi er slík endurskoðun brýn. Innlendir framleiðendur bjóða hátt og fá allan tollkvótann fyrir svínakjöt Að mati Félags atvinnurekenda eru fjórar ástæður fyrir hinum miklu hækkunum á útboðsgjaldinu. Í fyrsta lagi er aukin eftirspurn, m.a. vegna fólksfjölgunar og vegna þess að ferðamönnum hefur fjölgað mjög á nýjan leik eftir kórónuveirukreppuna. Innflytjendur þurfa líka oft að bregðast við skorti á tilteknum vörum á innanlandsmarkaði, til dæmis nautakjöti og skinkum í þeim gæðum sem markaðurinn krefst. Í öðru lagi er ljóst að innlendir framleiðendur búvara stunda það í vaxandi mæli að bjóða hátt í tollkvóta til að eiga auðveldara með að hindra erlenda samkeppni við eigin vörur og stýra þannig verðinu á innanlandsmarkaði. Í þessu útboði gerist það í fyrsta sinn að innlendir framleiðendur svínakjöts (Mata, systurfélag Ali og Matfugls, og Stjörnugrís) fá í sinn hlut allan tollkvótann fyrir svínakjöt. Sömu fyrirtæki hrepptu 78,3% af tollkvóta fyrir alifuglakjöt ræktað með hefðbundnum hætti. Mata fær auk þess í sinn hlut 36,4% af kvótanum fyrir lífrænt ræktað alifuglakjöt. Stjörnugrís nær í 62,8% kvótans fyrir þurrkaðar og reyktar skinkur og 17,2% nautakjötskvótans. Mjólkursamsalan fær 7,9% af ostakvótanum. Innlendir framleiðendur búvöru gerast þannig æ umsvifameiri í innflutningi. FA hefur sent ábendingu til Samkeppniseftirlitsins um að það taki þá viðskiptahætti til skoðunar. Í þriðja lagi blasir við að verðhækkanir á evrópskum búvörumarkaði spila inn í. Eftir því sem innkaupsverð búvara hækkar, lækkar hlutfall útboðsgjaldsins af verðinu og innflytjendur treysta sér þá til að bjóða hærra. Í fjórða lagi er ljóst að að sú tímabundna verndaraðgerð fyrir innlendan landbúnað að taka upp eldri útboðsaðferð, þar sem tollkvótar voru seldir hæstbjóðanda í 20 mánuði, hefur leitt til hækkana á gjaldinu sem ekki ganga svo auðveldlega til baka þótt nú hafi á nýjan leik verið tekin upp aðferð svokallaðs jafnvægisútboðs. Jafnvægisútboð felur í sér að í stað þess að selja tollkvótana hæstbjóðanda borga allir innflytjendur sem fá tollkvóta sama verð; lægsta samþykkta verð fyrir þann tollkvóta sem í boði er. Markmið um lægri kostnað vegna tollkvótaútboða hafa ekki náðst Jafnvægisútboðið var samþykkt með lögum í desember 2019 og fór fyrsta útboðið með þeirri aðferð fram í júní 2020. Það leiddi til verulegra lækkana á útboðsgjaldi fyrir flestar búvörur eins og sjá má á grafinu hér að ofan. Það var einmitt tilgangurinn; atvinnuvegaráðuneytið eins og það hét þá hafði viðurkennt að þáverandi fyrirkomulag útboðs á tollkvóta hefði „leitt til hærra vöruverðs fyrir neytendur, þvert á tilgang þess sem að baki tollasamningi Íslands og Evrópusambandsins árið 2015 liggur.“ Þegar þáverandi landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, tjáði sig um samþykkt frumvarps um málið, sagði hann: „Ég hef talið núgildandi fyrirkomulag við úthlutun tollkvóta bæði óeðlilegt og ósanngjarnt, sérstaklega fyrir hagsmuni neytenda. Því er samþykkt Alþingis á þessu frumvarpi sérstakt fagnaðarefni enda má gera ráð fyrir að kostnaður vegna útboða lækki talsvert. Þá verður allt regluverk um úthlutun tollkvóta sanngjarnara og einfaldara til hagsbóta fyrir neytendur, framleiðendur og innflytjendur matvæla.“ Ráðherrann hafði þessa afstöðu reyndar ekki lengi, því að tæpu ári síðar, í lok ársins 2020, flutti hann frumvarp um að taka fyrirkomulagið, sem honum hafði þótt „óeðliegt og ósanngjarnt“ upp aftur tímabundið til að verja innlendan landbúnað fyrir áhrifum kórónuveirukreppunnar. Sú breyting gilti í 20 mánuði og leiddi strax til hækkana á útboðsgjaldi, eins og sjá má á grafinu. Tollkvótaútboðið nú í ágúst var fyrsta jafnvægisútboðið sem fram fór eftir að hin tímabundna verndaraðgerð féll úr gildi. Nú bregður svo við, eins og sést í töflunni að ofan, að útboðsgjaldið er í öllum tilvikum hærra en í síðasta útboði ársins 2019, í sumum tilvikum tvö- til þrefalt hærra. Markmiðin sem sett voru við lagabreytinguna, um lækkun kostnaðar innflytjenda af tollkvótaútboðum, eru því rokin út í veður og vind. Nauðsynlegt að endurskoða úthlutun tollkvóta Félag atvinnurekenda taldi á sínum tíma að upptaka jafnvægisútboðs væri skárri en engin breyting á fyrirkomulagi úthlutunar tollkvóta, en benti engu að síður á að hún væri skammgóður vermir. „Sagan sýnir […] að útboðsgjaldið hefur á lengri tíma þá tilhneigingu að hækka stöðugt og ná jafnvægi í tölu sem er rétt undir kostnaði innflytjenda af að flytja viðkomandi vöru inn á fullum tolli. Engin ástæða er til að ætla að langtímaþróunin verði önnur, þótt breytt útboðsaðferð verði notuð. Þannig mun áframhaldandi uppboð á tollkvóta áfram éta upp smám saman ávinning fyrirtækja og neytenda af því tollfrelsi sem samið hefur verið um í alþjóðasamningum og stjórnmálamenn halda gjarnan fram á hátíðisstundum að eigi að stuðla að lægra vöruverði og meiri samkeppni,“ sagði í umsögn FA um frumvarp landbúnaðarráðherra. FA tók í þeirri umsögn undir tillögu Brynhildar Pétursdóttur, sem var fulltrúi Neytendasamtakanna í starfshópi sem samdi tillögur sem liggja frumvarpinu til grundvallar, en hún lagði til að hætt yrði að bjóða upp tollkvóta og þess í stað farin blönduð leið, þar sem 50% kvótans yrði úthlutað með hlutkesti og 50% á grundvelli sögulegra viðskipta (markaðshlutdeild). Rökstuðningur fulltrúa NS var að útboðsleiðin myndi hækka verð til neytenda og væri því ekki vænleg út frá hagsmunum þeirra, enda væri markmiðið með tollkvótunum að auka frelsi í viðskiptum með landbúnaðarvörur milli landa. Nú liggur fyrir að lagabreytingin 2019, sem átti að bæta hag neytenda, framleiðenda og innflytjenda matvæla hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Á sama tíma og matvörur hækka mjög í verði bætast hækkanir á útboðsgjaldinu ofan á verðhækkun innfluttra vara. Stjórnvöld hljóta að endurskoða fyrirkomulagið og taka til skoðunar tillögur FA, Neytendasamtakanna, Samkeppniseftirlitsins og fleiri um aðferðir til að úthluta tollkvóta án endurgjalds. Um leið hlýtur að þurfa að taka fyrir að innlendir framleiðendur misnoti úthlutunarkerfið til að hindra samkeppni. Með slíkum breytingum er hægt að stuðla að því að tollasamningurinn við Evrópusambandið skili því sem hann átti að skila; meiri samkeppni á matvörumarkaði og lægra verði til neytenda. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Neytendur Matvælaframleiðsla Landbúnaður Verðlag Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Vill fólk að leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun