TEN5ION og Fylkir mættust í Nuke og tryggði Tight TEN5ION réttinn til að byrja í vörn í hnífalotunni.
Tight hélt uppteknum hætti og náði þrefaldri fellu í fyrstu lotu til að koma TEN5ION yfir. Þrátt fyrir frábæra fellur frá Brnr með Zeus í þriðju lotu vann TEN5ION og hafði tökin framan af. Hugo og Capping voru einkar hittnir og duglegir í opnunum en Tight tók heldur betur til í endurtökunum.
Fylkismegin voru LeFluff og Brnr allt í öllu og þau tækifæri sem Fylkir þó fékk voru á bakinu á þeim og í ófá skipti voru þeir tveir einir eftir lifandi. Snær komst ekki á blað fyrr en eftir 12 lotur. Engu að síður setti Fylkir saman ágætis leik undir lok hálfleiks til að minnka muninn aðeins.
Staða í hálfleik: TEN5ION 9 – 6 Fylkir
Í síðari hálfleik skiptu liðin um hlutverk og Fylkir jafnaði leikinn eftir nokkrar lotur þegar Snær var kominn í gang. TEN5ION rétt svo hélt yfirhöndinni og var leikurinn í járnum. Hvorugt liðið efnaðist eitthvað sérstaklega og var hver lota því gríðarlega mikilvæg. TEN5ION gekk vel í lotum þegar þeir spöruðu og fóru hratt og tókst þeim með herkjum að komast í stöðuna 14–10.
Það sem gerði gæfumuninn fyrir Fylki var það að Gvendur raðaði inn fellum í vörninni og endurtökurnar undir lokin voru þéttar. Eftir 30 lotur var því allt jafnt og þörf á framlengingu.
Staða eftir venjulegan leiktíma: TEN5ION 15 – 15 Fylkir
Gvendur var áfram atkvæðamikill í framlengingunni þar sem Fylkir vann fyrstu lotuna. TEN5ION svaraði um hæl og liðin skiptust aftur á lotum. Að lokum hafði Fylkir betur þegar Brnr var einn gegn tveimur, kom sprengjunni fyrir og felldi bæði Vikka og Sveittan.
Lokastaða: TEN5ION 17 – 19 Fylkir
Næstu leikir liðanna:
- Þór – Fylkir, þriðjudaginn 27/9, klukkan 19:30
- LAVA – TEN5ION, fimmtudaginn 29/9 klukkan 19:30
Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.