Umfjöllun: AEK Larnaca 77-68 Þór Þ. | Stutt gaman hjá Þórsurum Valur Páll Eiríksson skrifar 27. september 2022 16:45 Emil Karel Einarsson er fyrirliði Þórs. vísir/bára Þór Þ. tapaði með níu stiga mun, 77-68, fyrir AEK Larnaca frá Kýpur í átta liða úrslitum í forkeppni Evrópubikarsins í körfubolta karla. Þórsarar eru því úr leik í keppninni.
Leikurinn fór fram í Mitrovica í Kósóvó, þar sem hraðmót upp á áframhald í keppninni fer fram. Leikur liðanna var í járnum í upphafi en eftir að hafa komist 11-9 yfir tók við fjögurra mínútna kafli án stigs frá Þórsurum þar sem þeir kýpversku komust 18-11 yfir. Þórsarar skoruðu sex stig á lokakafla fyrsta fjórðungs en staðan að honum loknum var 21-17 fyrir AEK. Leikurinn var áfram jafn framan af öðrum leikhluta en góður kafli AEK skilaði þeim níu stiga forystu í hálfleik, 45-36. Munurinn varð minnst fjögur stig, 49-45 fyrir AEK, í þriðja leikhluta en að honum loknum var hann tvöfalt meiri, 58-50. Þórsarar skoruðu sjö af fyrstu tíu stigum fjórða leikhlutans til að minnka muninn aftur í fjögur stig, 61-57. Þeir kýpversku héldu íslenska liðinu í seilingarfjarlægð allt til loka og unnu að endingu níu stiga sigur, 77-68. Þór er því úr leik í keppninni en AEK spilar aftur á móti við Antwerp Telenet Giants frá Belgíu í næstu umferð á morgun. Sigurlið þeirra viðureignar fer í úrslitaleik á föstudag um sæti í riðlakeppninni. Grikkinn Fotios Lampropoulos var stigahæstur hjá Þórsurum með 18 stig og tók að auki sjö fráköst. Alonzo Walker skoraði 16 stig og tók átta fráköst. Stigahæstur á vellinum var hins vegar Antreas Christodoulou úr AEK með 21 stig.
Körfubolti Þór Þorlákshöfn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti KR - KA | Hraðlestin komin aftur af stað? Íslenski boltinn Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira