Janus og Sigvaldi markahæstir en Kolstad þarf að snúa taflinu við Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. september 2022 20:26 Janus Daði Smárason skoraði fimm mörk fyrir Kolstad í kvöld. Kolstad Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson voru markahæstu menn Kolstad er liðið heimsótti spænska liðið Bidasoa Irun í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar í handbolta. Heimamenn höfðu betur í kvöld, 30-27, og Íslendingaliðið þarf því á sigri að halda í síðari leik liðanna að viku liðinni.
Gestirnir í Kolstad byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótt upp fjögurra marka forystu í stöðunni 3-7. Heimamenn skoruðu hins vegar næstu fjögur mörk og jöfnuðu leikinn og náðu svo sjálfir forskotinu fljótlega eftir það. Heimamenn héldu forystunni út fyrri hálfleikinn og leiddu með þremur mörkum þegar gengið var til búningsherbergja, 16-13. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af sama krafti og þeir enduðu þann fyrri. Liðið náði mest sex marka forskoti í stöðunni 21-15, en þá tóku gestirnir við sér og skoruðu sex mörk í röð og staðan var því orðin jöfn á nýjan leik. Liðin skiptust á að skora næstu mínútur, en heimamenn í Bidusoa Irun náðu aftur upp þriggja marka forskoti þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka og unnu að lokum sterkan þriggja marka sigur, 30-27. Eins og fyrr segir voru Janus og Sigvaldi atkvæðamestir í liði gestanna í kvöld þar sem Janus var næst markahæsti maður liðsins með fimm mörk og Sigvaldi markahæstur með sex. Síðari leikur liðanna fer fram í Noregi að viku liðinni og þar þarf Íslendingaliðið að snúa taflinu við til að vinna sér inn sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Handbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira