Handbolti

Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það verða örugglega margir ungir stuðningsmenn íslenska landsliðsins í Laugardalshöllinni í kvöld.
Það verða örugglega margir ungir stuðningsmenn íslenska landsliðsins í Laugardalshöllinni í kvöld. Getty/Catherine Ivill

Strákarnir okkar byrja undankeppni næsta Evrópumóts í kvöld þegar þeir taka á móti Úkraínumönnum í Laugardalshöllinni.

Áhuginn er mikill á íslenska liðinu sem endaði í fjórða sæti á EM í byrjun ársins og það er uppselt á leikinn.

Handknattleikssamband Íslands ætlar líka að bjóða upp á sérstakt Barna Fan-Zone fyrir leikinn.

Þar verður skemmtun og glaðningur í boði fyrir krakkana fyrir leik Íslands og Úkraínu.

Svæðið verður opnað klukkan 18.00 en leikurinn hefst svo klukkan 19.30.

Þeir sem eiga miða á leikinn eru einnig í pottinum þegar dregið verður um áritaða landsliðstreyju. Það verður dregið í hálfleik þar sem vinningshafinn birtist á LED-skjánum í Höllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×