Innlent

Á­tján mánuðir fyrir að flytja inn fjór­tán þúsund töflur

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn flutti efnin inn dulbúin sem lögleg lyf.
Maðurinn flutti efnin inn dulbúin sem lögleg lyf. Vísir/Vilhelm

Karlmaður var á dögunum dæmdur til átján mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að flytja inn fjórtán þúsund töflur sem innihéldu virka efnið fúbrómazólam.

Maðurinn var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í apríl síðastliðnum staðið að innflutningi á samtals 13.986 stykkjum af töflum sem innihéldu flúbrómazólam, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Maðurinn flutti fíkniefnin inn í ferðatösku sem hann hafði meðferðis sem farþegi með flugi frá Manchester á Englandi.

Flúbrómazólam er skylt flokki lyfja sem kallast benzódíazepín sem hafa meðal annars róandi og kvíðastillandi verkun. Efnið er ekki á lyfjamarkaði og hefur lítið verið rannsakað. Það telst þó til ávana-og fíkniefna sem eru óheimil á íslensku forráðasvæði.

Kom ekki að skipulagningu

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að maðurinn hafi hvorki komið að fjármögnun né skipulagningu brotsins. Hann var því það sem er í daglegu tali kallað burðardýr.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til skýlausrar játningar hans, þess að hann hafi verið samvinnufús við rannsókn málsins og að hann hefði ekki hlotið refsingu hér á landi áður, til mildunar.

Til þyngingar leit dómurinn hins vegar til umfangs og alvarleika brotsins hvað varðar magn og sérstaklega til þess að efnið var flutt inn í formi taflna í umbúðum sem ranglega báru þess merki að um löglegt lyf væri að ræða.

Dómurinn taldi refsingu mannsins hæfilega ákveðna átján mánuði í fangelsi. Með vísan til alvarleika brotsins taldi dómurinn ekki tilefni til að skilorðsbinda refsingu hans en til frádráttar komi óslitið gæsluvarðhald hans í 82 daga.

Þá var honum gert að greiða þóknun tveggja skipaðra verjanda sinna, alls 2,5 milljónir króna,útlagðan kostnað og aksturkostnað annars verjandans upp á tæplega 300 þúsund krónur og annan sakarkostnað upp á um 180 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×