Innlent

Aldrei fleiri alvarleg ofbeldisbrot

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Lögregla segir að konunni hafi verið ráðinn bani í Laugardalnum.
Lögregla segir að konunni hafi verið ráðinn bani í Laugardalnum. Vísir/Vilhelm

Aldrei hafa fleiri alvarleg ofbeldisbrot verið skráð hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en á fyrstu níu mánuðum ársins. Brotin hafa ríflega tvöfaldast á fimmtán árum. Lögreglan rannsakar nú hvort saknæmt athæfi hafi átt sér stað þegar kona á sextugsaldri lést um helgina. Tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Lögreglan fékk á laugardaginn tilkynningu um mál konunnar en konan var þá látin í bíl við hús í Laugardalnum. Grunur er um manndráp og málið í rannsókn. Tengsl er á milli mannanna tveggja og konunnar en mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram á fimmtudag.

Þetta er í annað skiptið á innan við viku hér á landi sem grunur er um manndráp en karlmaður á fimmtugsaldri lést af völdum stungusára á Ólafsfirði aðfaranótt síðastliðins mánudags. Aðeins eru sex vikur eru síðan kona var myrt á Blönduósi. Árásarmaðurinn lést einnig á vettvang. Þá var maður myrtur í Barðavogi í Reykjavík í byrjun júní.

Samkvæmt Hagstofu Íslands hafa eitt til þrjú manndráp verið framin á ári hverju hér á landi frá árinu 2010. Þau hafa hins vegar verið fleiri og voru sex árið 2000.

Þá hafa tilkynningar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um alvarleg ofbeldisbrot og manndráp meira en tvöfaldast á sextán árum. Fyrstu níu mánuði ársins 2007 voru þau 88 en á þessu ári 223 og hafa aldrei verið fleiri.

Eins og sjá má hefur aukning á ofbeldisbrotum verið veruleg.Grafík/Sara

Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur segir aukninguna áhyggjuefni en skýringarnar geti mögulega verið nokkrar.

„Til dæmis kannski aukið og breytt verklag lögreglu að taka ofbeldi alvarlegra en kannski stundum áður. Að því leytinu til sem að birtist í til dæmis ofbeldi nákominni að taka öðruvísi á því heldur en oft áður.“

Þá séu mál oftar en áður kærð. 

„Ofbeldi er eitthvað sem við leyfum okkur ekki í okkar samfélagi og umburðarlyndið er minna fyrir beitingu ofbeldis af þessu tagi.“

Breytt samskipti líka verið hluti skýringarinnar.

„Líka mögulegt að það sé eitthvað að gera bara með samskiptahætti fólks sérstaklega á skemmtanalífinu meðal ungs fólks. Varðandi til dæmis eins og vopnaburð og hnífaburð af því tagi. Spurningin um það að svara áreitni með ofbeldi eða eitthvað slíkt að það þurfi lítið til þess að menn beiti jafnvel alvarlegu ofbeldi ef einhver ágreiningur verður. Þannig að þættir af því tagi spila þarna örugglega inn í.“


Tengdar fréttir

Hinir grunuðu og konan þekktust

Tveir karlmenn á fimmtugsaldri eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um manndráp. Hin látna er kona á sextugsaldri og hefur samkvæmt heimildum fréttastofu tengsl við mennina sem eru á fimmtugsaldri.

Yfirheyrslum yfir feðgunum ekki lokið

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ekki lokið skýrslutöku yfir feðgum sem hafa stöðu sakbornings eftir árás á Blönduósi í síðasta mánuði þar sem tvennt lést. Lögreglustjórinn segir málið ekki fullrannsakað og enn sé verið að yfirheyra aðila sem tengjast því. Réttarkrufningu hinna látnu sé lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×