Harden frá í mánuð hið minnsta Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. nóvember 2022 18:01 Hinn 33 ára gamli Harden verður frá næstu vikurnar. Scott Taetsch/Getty Images James Harden meiddist á hægri fæti í tapi Philadelphia 76ers gegn Washington Wizards í NBA deildinni í körfubolta á dögunum. Hann verður frá í mánuð hið minnsta vegna meiðslanna.
Philadelphia 76ers var spáð góðu gengi fyrir tímabilið en Harden mætti líkt og nýr maður inn í undirbúningstímabilið. Hann var búinn að skafa af sér aukakílóin - þó það megi deila um hvað þau voru mörg - og virtist tilbúinn að berjast um titilinn. Tímabilið fór þó ekki vel af stað og Philadelphia tapaði fyrstu þremur leikjunum. Þeir höfðu hins vegar unnið fjóra og tapað aðeins einum þegar kom að leiknum gegn Wizards á miðvikudaginn var. Kristaps Porziņģis og Bardley Beal voru með sýningu og 76ers töpuðu með tíu stiga mun. Harden spilaði 35 mínútur í leiknum, skoraði 24 stig og gaf tíu stoðsendingar. Er það nokkurn veginn á pari við frammistöður hans til þessa en Harden er með 22 stig að meðaltali í leik, tíu stoðsendingar og sjö fráköst. ESPN Sources: Philadelphia 76ers star James Harden has suffered right foot tendon strain and is expected to miss a month. pic.twitter.com/LHEIucfbFj— Adrian Wojnarowski (@wojespn) November 3, 2022 Ljóst er að Philadelphia mun sakna Harden og í raun má liðið ekki við því að missa hann út í jafn langan tíma og raun ber vitni. Aðallega því baráttan um sæti í úrslitakeppninni ætlar að vera hörð í Austurdeildinni. Philadelphia er sem stendur í 8. sæti með fjóra sigra í níu leikjum.
Körfubolti NBA Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Fleiri fréttir Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Sjá meira