Öskraði, braut afgreiðsluborð og veittist að starfsmanni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. nóvember 2022 06:46 Lögreglan fór í þrjú útköll vegna ofurölvi einstaklinga í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var nokkrum sinnum kölluð til í gærkvöldi og nótt vegna ofurölvi einstaklinga, meðal annars að bensínstöð í póstnúmerinu 110 þar sem maður hafði öskrað og slegið í afgreiðsluborð úr gleri með þeim afleiðingum að það brotnaði upp úr borðinu.
Atvikið átti sér stað um klukkan 21 og lét maðurinn sig hverfa í kjölfarið en mætti aftur um miðnætti og veittist að starfsmanni. Maðurinn var þá handtekinn og fluttur á lögreglustöð og síðan í fangageymslu. Hann er einnig grunaður um þjófnað. Annar ölvaður maður var handtekinn í sama hverfi um klukkan 20.30 en þegar komið var að svaf hann ölvunarsvefni utandyra og var með áverka í andliti. Sjúkrabifreið var kölluð út til að meta ástand mannsins en hann síðan færður á lögreglustöð og vistaður sökum ástands. Enn fyrr um kvöldið var aðstoðar lögreglu óskað á veitingastað í póstnúmerinu 105. Þar reyndist ofurölvi maður ekki hafa getað greitt fyrir þær veitingar sem hann fékk og var að auki sofnaður ölvunarsvefni. Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu sökum ástands. Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni grunaðir um akstur undir áhrifum. Þá var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í Kópavogi, þar sem 3.000 krónum var stolið úr peningaboxi. Rétt fyrir kvöldmat var tilkynnt um umferðarslys í sama bæjarfélagi, þar sem ekið var á gangandi vegfaranda. Var hann með áverka á höfði og mjöðm og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira