Erlent

Ó­væntar fjöl­skyldu­myndir stað­festa til­vist dóttur leið­toga Norður-Kóreu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ekki beint hin venjulega fjölskyldumynd.
Ekki beint hin venjulega fjölskyldumynd. Korean Central News Agency/Korea News Service via AP)

Óvænt birting mynda af Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu og dóttur hans saman hafa staðfest raunverulega tilvist hennar. Þetta er í fyrsta skipti sem myndir af henni eru birtar opinberlega.

Talið er að nafn stúlkunnar sé Kim Chu-ae og að hún sé á aldrinum tólf til þrettán ára.

Myndirnar sem um ræðir sýna feðginin saman við undirbúning prófunar á langdrægum eldflaugum hins algjöra einræðisríkis.

Nokkrar myndir voru birtar af KCNA, hinum opinbera fjölmiðla ríkisins. Þar má sjá þau tvö meðal annars leiðast. Í bakgrunni myndanna eru hinar langdrægu eldflaugar sem ríkið hefur verið að skjóta á loft í tilraunaskyni að undanförnu.

Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu og dóttir hans.Korean Central News Agency/Korea News Service via AP

Um er að ræða öflugustu eldflaugar sem ríkið hefur skotið upp og er mögulega talið að drægni þeirra nái alla leið til Bandaríkjanna.

Nær ekkert er vitað um persónulegt líf hins 38 ára Kim Jong-un. Lengi hefur verið uppi orðrómur um að hann ætti dóttur en það hefur aldrei fengist staðfest, fyrr en nú.

Um er að ræða öflugustu eldflaugar sem Norður-Kórea hefur smíðað..Korean Central News Agency/Korea News Service via AP

Sá orðrómur vaknaði eftir för körfuboltakappans Dennis Rodman til Norður-Kóreu árið 2013. Við heimkomuna greindi hann frá því að hann hafi eytt tíma með fjölskyldu Kim Jong og meðal annars haldið á litlu barni.

Í frétt BBC um málið er rætt við Michael Madden, sérfræðing í málefnum Norður-Kóreu. Segir hann að myndbirtingin geti verið til þess að sýna að mögulegur arftaki leiðtogan sé til staðar.

Feðginin fylgjast með eldflaugaskotinu.Korean Central News Agency/Korea News Service via AP

Talið er mögulegt að Kim Jong-un eigi þrjú börn og að Kim Chu-ae sé það elsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×