Bein útsending: Matvælaþing 2022 Atli Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2022 08:46 Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra boðaði til þingsins. Vísir/Vilhelm Matvælaþing 2022 fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Það er Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sem boðar til þingsins sem hefst klukkan 9:15 og stendur til 15:45.
Á þinginu mun matvælaráðherra kynna drög að nýrri matvælastefnu ráðuneytisins. Þinginu er ætlað að vera vettvangur samræðu og rýni hagaðila um stefnuna og er stefnt undir eitt þak þeim fjölmörgu og ólíku starfsgreinum sem koma að framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla á Íslandi. Hægt er að fylgjast með þinginu í spilaranum að neðan. Í tilkynningu frá matvælaráðunetinu kemur fram að auk erindis matvælaráðherra munu þau Olga Trofimtseva fyrrum landbúnaðaráðherra Úkraínu og Pete Ritchie framkvæmdastjóri samtakanna Nourish Scotland flytja erindi. „Olga Trofimtseva er úkraínsk stjórnmálakona, stjórnandi og doktor í landbúnaðarvísindum. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af stjórnun landbúnaðarmála í heimalandi sínu og á alþjóðlegum vettvangi. Stríðið í Úkraínu hefur gjörbreytt heimsmyndinni, og hafa íbúar landsins og stjórnkerfi þurft að takast á við nýjan veruleika hvað varðar fæðuöryggi og aðfangakeðjur. Markmið samtakanna Nourish Scotland sem Pete Ritchie stýrir er að tryggja aðgang allra að næringarríkum mat á viðráðanlegu verði. Einnig að framleiðsla og dreifing matvæla sé unnin af umhyggju fyrir jarðvegi, loftslagi og lífríkinu og matvælaframleiðendur, dreifingaraðilar og neytendur deili yfirráðum yfir matvælakerfinu. Samtökin leggja og áherslu á að Skotar rækti meira af því sem þeir borða, og borði meira af því sem þeir rækta. Á þinginu verða fjölbreyttar pallborðsumræður þar sem m.a. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Halla Logadóttir orkumálastjóri og Þórólfur Guðnason fyrrum sóttvarnalæknir munu taka þátt. Stjórnandi ráðstefnunnar er Brynja Þorgeirsdóttir. Að matvælaþingi loknu mun ráðuneytið vinna úr þeirri umræðu sem á sér stað á þinginu áður en matvælastefnan verður sett í samráðsgátt stjórnvalda. Í kjölfarið verður unnin þingsályktunartillaga um matvælastefnu sem verður lögð fyrir Alþingi.“ Dagskrá þingsins: 09:15 - 09:20 Brynja Þorgeirsdóttir, fundarstjóri, setur Matvælaþing. 09:20 - 09:45 Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, kynnir drög að matvælastefnu fyrir Ísland 09:45 - 10:15 Pete Ritchie kynnir matvælastefnu Skotlands, Nourish Scotland 10:15 - 10:40 Mettir magar og heilbrigð jörð - sjálfbær matvælaframleiðsla. Pallborðsgestir: Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, fyrrverandi forseti Ungra umhverfissinna, Stefán Gíslason, stofnandi og eigandi Environice, Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðukona Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun. 10:40 - 10:50 Bergur Ebbi - Matvæli og sjálfsmynd 10:50 - 11:05 Kaffihlé 11:05 - 11:30 Nóg til og meira frammi – fæðuöryggi. Pallborðsgestir: Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur, Þórunn J. Hafstein, ritari Þjóðaröryggisráðs, Ari Fenger, forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs Íslands 11:30 - 11:55 Afgangar í forgang - fullnýting afurða. Pallborðsgestir: Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Oddur Már Gunnarsson, forstjóri MATÍS, Solla Eiríks, matarhönnuður, Rúnar Þór Þórarinsson, yfirmaður sjálfbærni og þróunarmála hjá Landeldi 11:55 - 13:00 Hádegisverður 13:00 - 13:35 Berum björg í þjóðarbú – samfélag. Pallborðsgestir: Stefán Jón Hafstein, fyrrum sendiherra Íslands hjá FAO, höfundur bókarinnar Heimurinn eins og hann er. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu - miðstöð um sjálfbærni, Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar 13:35 - 13:45 Bergur Ebbi - Matvælaframleiðsla framtíðar 13:45 - 14:10 Höldum maðkinum úr mysunni – matvælaöryggi. Pallborðsgestir: Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, Jónas Jónasson, forstjóri Benchmark Genetics, Herdís Magna Gunnarsdóttir, formaður nautgripabænda og varaformaður bændasamtakanna. 14:10 - 14:40 Olga Trofimtseva, fyrrum landbúnaðarráðherra Úkraínu 14:40 - 15:05 Grunnþarfir og sérþarfir – neytendur. Pallborðsgestir: Andri Guðmundsson, forstjóri Vaxa, Björn Lárus Örvar, vísindastjóri Orf, Eygló Björk Ólafsdóttir, formaður Vor, félags framleiðenda í lífrænum búskap, Finnur Oddsson, forstjóri Haga. 15:05 - 15:30 Hvað verður í matinn á morgun? - Horft til framtíðar. Pallborðsgestir: Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Margrét Jónsdóttir Narðvík, rektor Háskólans á Bifröst, Ólafur Ögmundarson, lektor við Matvæla og næringarfræðideild HÍ, Sigrún Perla Gísladóttir, frá ungum umhverfissinnum 15:30 - 15:45 Samantekt Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra
Matvælaframleiðsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Landbúnaður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Sjá meira