Skapa 500 störf og 12 milljarða úr smáræði af fiskroði Heimir Már Pétursson skrifar 30. nóvember 2022 20:13 Uppgangur líftæknifyrirtækisins Kerecis á Ísafirði hefur verið ævintýralegur. Fyrirtækið framleiðir einstaklega græðandi umbúðir úr þorskroði sem oft á tíðum kemur í veg fyrir að aflima þurfi fólk. Verðmæti afurðanna er meira en alls sjávarfangs á Vestfjörðum að frátöldu fiskeldi.
Kerecis er með höfuðstöðvar á Ísafirði þar sem öll framleiðsla fer fram og veitir tæplega sjötíu manns vinnu. En tæplega fimm hundruð manns vinna hjá fyrirtækinu þar, í Reykjavík og í Bandaríkjunum sem er aðalmarkaður afurðanna. Mikil áhersla er lögð á hreinlæti við framleiðsluna.Kerecis Það er sannkallað ævintýri sem hefur átt sér stað hjá hinu tíu ára gamla fyrirtæki Kerecis á Ísafirði. Það eru ekki allir sem geta státað af því að búa til ellefu til tólf milljarða úr tæplega tvö hundruð tonnum af fiski. En það er einmitt það sem gerist. En það segir ekki alla söguna því Kerecis nýtir einungis roðið af þorskinum sem annars yrði hent. Það eru tæplega tvö tonn af roði á ári, þannig að framlegðin er gífurlega mikil. Kerecis hefur lagt áherslu á heilbrigðismarkaðinn í Bandaríkjunum þar sem um 150 þúsund sykursýki sjúklingar eru aflimaðir á hverju ári vegna sýkinga í fótum.Kerecis Þessar græðandi sáraumbúðir eru uppfinning Guðmundar Fertram Sigrjónssonar stofnanda fyrirtækisins sem einnig er forstjóri þess og er efna- og verkfræðingur að mennt. Hann segir að þar til Kerecis kom fram með sína vöru hafi aðallega verið notast við líkhúð, húð af svínum eða sjúklingunum sjálfum. „Þorskroðið er hreinna en spendýravefur. En aðalmálið með þorskinn er að hann lifir bara í eins til tveggja gráðu hita. Það eru engar veirur sem geta smitast frá þorski yfir í menn því hitastuðullinn er svo breytilegur. Þannig að við þurfum ekki að meðhöndla þorskroðið með kemískum efnum,“ segir Guðmundur þar sem hann sýnir okkur framleiðslustöðina. Vinnslan væri því bæði mun umhverfisvænni og lítil hætta á veirusmiti. Guðmundur F. Sigurjónsson er stofnandi og forstjóri Kerecis sem í dag framleiðir verðmæti fyrir 11 -12 milljarða króna á ári.Stöð 2/Ívar „Við bara tökum þorskroðið, hreinsum það í klefunum hérna. Þurrkum það, affrumum það og svo er það notað á sárin," segir Guðmundur. Það eru miklar hreinlætiskröfur í kring um framleiðsluna. Fólk þarf að fara í gegnum tvö lofthreinsihólf áður en maður kemst að því allra heilagasta í dauðhreinsuðum hlífðarfatnaði. „Sár eru mjög stórt vandamál á heimsvísu. Sérstaklega hjá sykursjúkum. Þeir eiga við vandamál að stríða, sármyndun á fótum. Háræðarnar deyja á fætinum, það koma sár og þessi sár stækka. Um sex prósent af öllum sykursjúkum fá svo stór sár að fætur eru aflimaðir,“ segir Guðmundur. Þá eru sárin jafnvel komin inn að beini og fólk í hættu með að deyja úr beineitrun. Sykursýki 2 tengist oft offitu sem er mikið vandmál í Bandaríkjunum og vaxandi vandamál hér á landi og víða í Evrópu. Þess vegna hefur megin áherslan verið lögð á heilbrigðismarkaðinn í Bandaríkjunum en Evrópa er í sigtinu. Guðmundur segir að aðferðin gefst einnig vel við meðhöndlun annarra sára. Fyrirtækið hafi til að mynda samning við bandaríska herinn. Framleiðslan hófst að lokinni þróunarstarfsemi fyrir sex árum og hefur gengið mjög vel. „Tekjurnar okkar núna á þessu fjárhagsári sem lauk 1. október voru 72 milljónir dollara. Við gerum ráð fyrir að tekjurnar á almanaksárinu miðað við gengið í dag verði ellefu til tólf miljarðar. Það er talsvert meira en allar tekjur af fiskvinnslu á Vestfjörðum ef ég tek ekki fiskeldið með,“ segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson.
Nýsköpun Ísafjarðarbær Líftækni Tengdar fréttir Nýr framkvæmdastjóri hjá Kerecis Dr. Dan Mooradian hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarmála hjá Kerecis. Klara Sveinsdóttir sem var áður framkvæmdastjóri rannsóknar-, þróunar-, gæða- og skráningarmála mun nú einbeita sér einungis að gæða- og skráningarmálum. 12. september 2022 12:00 Hætti sem stjórnarformaður Kerecis að kröfu nýja danska fjárfestisins Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, gegnir ekki lengur stjórnarformennsku í hinu ört vaxandi íslenska fyrirtæki í kjölfar aðalfundar þess í liðnum mánuði en þar var fulltrúi Kirkbi, fjárfestingafélag LEGO-fjölskyldunnar, kjörinn nýr í stjórnina eftir að danska félagið keypti rúmlega sex prósenta hlut í Kerecis fyrir jafnvirði um 5,5 milljarða króna. 22. ágúst 2022 15:29 Guðmundur Fertram gegnir stjórnarformennsku hjá indó Guðmundur Fertra Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, varð fyrr á þessu ári stjórnarformaður indó, nýja sparisjóðsins sem mun hefja starfsemi í haust. 30. maí 2022 12:44 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Sjá meira
Nýr framkvæmdastjóri hjá Kerecis Dr. Dan Mooradian hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarmála hjá Kerecis. Klara Sveinsdóttir sem var áður framkvæmdastjóri rannsóknar-, þróunar-, gæða- og skráningarmála mun nú einbeita sér einungis að gæða- og skráningarmálum. 12. september 2022 12:00
Hætti sem stjórnarformaður Kerecis að kröfu nýja danska fjárfestisins Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, gegnir ekki lengur stjórnarformennsku í hinu ört vaxandi íslenska fyrirtæki í kjölfar aðalfundar þess í liðnum mánuði en þar var fulltrúi Kirkbi, fjárfestingafélag LEGO-fjölskyldunnar, kjörinn nýr í stjórnina eftir að danska félagið keypti rúmlega sex prósenta hlut í Kerecis fyrir jafnvirði um 5,5 milljarða króna. 22. ágúst 2022 15:29
Guðmundur Fertram gegnir stjórnarformennsku hjá indó Guðmundur Fertra Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, varð fyrr á þessu ári stjórnarformaður indó, nýja sparisjóðsins sem mun hefja starfsemi í haust. 30. maí 2022 12:44