Viðskipti innlent

Fékk verð­laun CAPA sem besta nýja flug­fé­lag ársins

Atli Ísleifsson skrifar
Birgir Jónsson, forstjóri Play, tók við verðlaununum í Gíbraltar í gærkvöldi.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, tók við verðlaununum í Gíbraltar í gærkvöldi. Aðsend

Flugfélagið Play hefur verið valið besta nýja flugfélagið af CAPA, alþjóðlegum samtökum um flugmál. Birgir Jónsson forstjóri tók við verðlaununum fyrir hönd félagsins í Gíbraltar í gærkvöldi.

Í rökstuðningi á vef CAPA segir að Play hafi lært af mistökum WOW air og skarað fram úr með viðskiptamódeli sínu sem byggist á að flytja farþega á milli Bandaríkjanna og Evrópu með hagkvæmlega staðsetta heimahöfn á Íslandi.

Þá hafi félagið sýnt stigið varlega til jarðar með því að ætla sér ekki um of og notast við hagkvæmar flugvélar sem henti flugleggjum félagsins vel.

„Í rökstuðningi CAPA segir einnig að stjórnendur Play hafi staðsett fyrirtækið vel fyrir framtíðina með áherslu á stafrænar lausnir og sjálfbærni sem einum af grunnstoðum fyrirtækisins. Þá segir að Play hafi sýnt mikla seiglu á krefjandi tímum með því að skila rekstrarhagnaði á þriðja ársfjórðungi 2022,“ segir í tilkynningu frá flugfélaginu.

Nógu erfitt fyrir

Haft er eftir Marco Navarria, talsmanni hjá CAPA, að það sé nógu erfitt fyrir að stofna nýtt flugfélag, en að gera það í svo krefjandi árferði með eins góðum árangri sé einstakt. „Það er því með mikilli ánægju sem CAPA hefur valið Play sem besta nýja flugfélagið árið 2022,“ segir Navarria.

Þá er haft eftir forstjóranum Birgi Jónssyni að það sé afar ánægjulegt að fá svona alþjóðlega viðurkenningu á því sem félagið sé að gera og því frábæra starfi sem starfsfólk félagsins hafi unnið við krefjandi aðstæður

„Þetta er gott veganesti til að fara með inn í komandi ár og veitir okkur aukinn kraft til að halda áfram að gera vel og halda áfram að byggja upp félag sem mun reynast ferðamönnum góður og hagkvæmur kostur,“ segir Birgir.


Tengdar fréttir

Öðrum hlut­höfum Play einnig boðið að taka þátt

Flugfélagið Play hyggst einnig efna til hlutafjárútboðs á meðal minni fjárfesta félagsins. Útboðið verður á sömu kjörum og tuttugu stærstu hluthöfum félagsins bauðst í hlutafjárútboði í síðustu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×