Sjarmatröllið sem vann hug og hjarta þjóðarinnar fyrir nítján árum síðan Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 2. desember 2022 17:01 Anna Katrín Guðbrandsdóttir lenti í 3. sæti í fyrsti þáttaröð af Idol Stjörnuleit. Það muna eflaust margir eftir hinni sautján ára gömlu Önnu Katrínu sem mætti í áheyrnarprufur fyrir Idol Stjörnuleit fyrir tæpum tveimur áratugum síðan. Anna Katrín vann hug og hjörtu þjóðarinnar og var meðal annars kölluð „sjarmatröll“ og „sviðsdýr“. „Ég held ég sé góð fyrirmynd og mér finnst þetta rosalega skemmtilegt og ég held ég muni standa mig mjög vel í þessu,“ sagði Anna Katrín Guðbrandsdóttir, þegar hún mætti í sínar fyrstu áheyrnarprufur á Hótel Kea á Akureyri árið 2003. Nokkrum mánuðum áður hafði Anna Katrín sigrað Söngvakeppni framhaldsskólanna með laginu Vísur Vatnsenda-Rósu og var hún því nokkuð sviðsvön. Hún sagði það þó vera mun meira stressandi að standa ein fyrir framan þrjá dómara og syngja, heldur en uppi á sviði fyrir framan fullan sal af fólki. „Ég syng á hverjum degi. Ég syng nú oftast bara í herberginu mínu og ég hef alltaf fengið mjög góða krítík fyrir það hvernig ég syng,“ sagði hún sjálfsörugg áður en hún fór inn til dómaranna, Siggu Beinteins, Bubba Morthens og Þorvalds Bjarna, og flutti Maístjörnuna. Klippa: Anna Katrín - Fyrsta þáttaröð Idol Röddin heillaði en lykkjurnar ekki Dómararnir heilluðust af Önnu Katrínu og hennar undurfögru rödd, en voru þó síður hrifnir af lykkjum og slaufum sem þeim fannst hún nota heldur of mikið. „Mér fannst svolítið ljótt hvað þú notaðir alltaf sömu lykkjuna fyrir aftan hverja nótu. Þú hefur náð tökum á þeirri lykkju en ég veit ekki hvað þú getur meira af því þú söngst alltaf sömu,“ sagði Þorvaldur Bjarni sem vildi þó sjá meira af Önnu Katrínu. „Ég ætla að segja já vegna þess að þú heillaðir mig alveg. Þú hefur mikla útgeislun. Þú syngur vel en það má minnka lykkjurnar og nota þær á færri stöðum. Það má ekki ofnota svona skraut. Það er kraftur í þér og ég vil sjá þig áfram,“ sagði Sigga Beinteins. Vann hug og hjörtu þjóðarinnar „Ég veit að þetta er svalt og þetta er inn, þessi söngstíll, en þetta lag þurfti ekkert á þessu að halda, ekki baun í bala,“ sagði Bubbi Morthens sem var ekki þekktur fyrir það að skafa af hlutunum í dómarahlutverkinu. Þá minnti hann hana á það að hún hafi verið að syngja á íslensku og ætti því að vanda framburðinn. Þrátt fyrir þessa gagnrýni fékk Anna Katrín þrjú já og komst því áfram. Hún óx og dafnaði með hverjum þættinum. Með tímanum tókst henni svo að vinna hug og hjörtu bæði dómnefndar og þjóðarinnar. Klippa: Anna Katrín - Ekkert breytir því „Þú bara hefur þetta“ „Þú ert með svona tónlistarhæfileika sem eru þannig að maður treystir þér bara þegar þú byrjar. Það er allt í lagi þó að þú myndir fara aðeins út fyrir, því þú bara hefur þetta. Ég hef trú á því að þú eigir eftir að vinna þetta,“ sagði Þorvaldur Bjarni við Önnu Katrínu eftir flutning hennar í níu manna úrslitunum í Vetrargarðinum. „Ef þú vinnur ekki þessa keppni verður þú samt poppstjarna,“ bætti Sigga Beinteins við. Sjarmatröllið Anna Katrín komst alla leið í úrslitaþáttinn þar sem hún stóð ein eftir með þeim Kalla Bjarna og Jóni Sigurðssyni. Það var Kalli Bjarni sem stóð uppi sem fyrsta Idolstjarna Íslands og hafnaði Anna Katrín í þriðja sæti sem verður að teljast stórkostlegur árangur. Anna Katrín hefur búið í Danmörku undanfarin áratug. Samkvæmt Facebook-síðu hennar starfar hún í dag sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum þar í landi. Í tilefni þess að fimmta þáttaröð af Idol er nú í fullum gangi mun Vísir rifja upp gömul Idol augnablik sem fara með lesendur aftur til fortíðar og kalla fram sannkallaða nostalgíu. Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fór í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember. Idol Bíó og sjónvarp Einu sinni var... Tengdar fréttir 1 dagur í Idol: Eftirminnilegir keppendur úr fyrstu þáttaröð Idol Stjörnuleit var haldin í fyrsta sinn hér á landi árið 2003. Þá hafði þátturinn farið sigurför um heiminn og áhuginn hér á landi því gríðarlegur. Um 1400 mans skráðu sig í áheyrnarprufur og freistuðu þess að verða fyrsta Idolstjarna Íslands. 24. nóvember 2022 09:00 4 dagar í Idol: Sextán ára Emmsjé Gauti heillaði dómara en átti ekki heima í Idol Það eru ekki allir sem vita að Emmsjé Gauti, einn allra vinsælasti rappari Íslands, reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit þegar hann var aðeins sextán ára gamall. 21. nóvember 2022 09:02 5 dagar í Idol: Svíður enn að hafa tilkynnt rangan keppanda Þau eru ansi stór fótsporin sem þau Aron Mola og Sigrún Ósk þurfa að feta í í nýrri þáttaröð Idol sem hefur göngu sína á föstudaginn. Kynnarnir Simmi og Jói settu mikinn svip á fyrri þáttaraðir, svo mikinn að þeir voru notaðir sem fordæmi fyrir Idol kynna í öðrum löndum. 20. nóvember 2022 09:01 6 dagar í Idol: Reyndu fyrir sér í Idol áður en þær urðu Nylon stjörnur Það muna allir eftir stúlknasveitinni Nylon en sveitin var eitt vinsælasta stúlknaband sem Ísland hefur getið af sér. Það sem færri vita þó er að tvær af meðlimum Nylon, þær Alma og Steinunn, höfðu reynt fyrir sér í Idol Stjörnuleit áður en Nylon var stofnuð. 19. nóvember 2022 09:02 Mest lesið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Lífið Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Lífið Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Lífið Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Lífið Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Lífið Stiklusúpa: Eins gott að þið spöruðuð frídaga inn í haustið Leikjavísir Taylor Swift trúlofuð Lífið Fleiri fréttir Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Sjá meira
„Ég held ég sé góð fyrirmynd og mér finnst þetta rosalega skemmtilegt og ég held ég muni standa mig mjög vel í þessu,“ sagði Anna Katrín Guðbrandsdóttir, þegar hún mætti í sínar fyrstu áheyrnarprufur á Hótel Kea á Akureyri árið 2003. Nokkrum mánuðum áður hafði Anna Katrín sigrað Söngvakeppni framhaldsskólanna með laginu Vísur Vatnsenda-Rósu og var hún því nokkuð sviðsvön. Hún sagði það þó vera mun meira stressandi að standa ein fyrir framan þrjá dómara og syngja, heldur en uppi á sviði fyrir framan fullan sal af fólki. „Ég syng á hverjum degi. Ég syng nú oftast bara í herberginu mínu og ég hef alltaf fengið mjög góða krítík fyrir það hvernig ég syng,“ sagði hún sjálfsörugg áður en hún fór inn til dómaranna, Siggu Beinteins, Bubba Morthens og Þorvalds Bjarna, og flutti Maístjörnuna. Klippa: Anna Katrín - Fyrsta þáttaröð Idol Röddin heillaði en lykkjurnar ekki Dómararnir heilluðust af Önnu Katrínu og hennar undurfögru rödd, en voru þó síður hrifnir af lykkjum og slaufum sem þeim fannst hún nota heldur of mikið. „Mér fannst svolítið ljótt hvað þú notaðir alltaf sömu lykkjuna fyrir aftan hverja nótu. Þú hefur náð tökum á þeirri lykkju en ég veit ekki hvað þú getur meira af því þú söngst alltaf sömu,“ sagði Þorvaldur Bjarni sem vildi þó sjá meira af Önnu Katrínu. „Ég ætla að segja já vegna þess að þú heillaðir mig alveg. Þú hefur mikla útgeislun. Þú syngur vel en það má minnka lykkjurnar og nota þær á færri stöðum. Það má ekki ofnota svona skraut. Það er kraftur í þér og ég vil sjá þig áfram,“ sagði Sigga Beinteins. Vann hug og hjörtu þjóðarinnar „Ég veit að þetta er svalt og þetta er inn, þessi söngstíll, en þetta lag þurfti ekkert á þessu að halda, ekki baun í bala,“ sagði Bubbi Morthens sem var ekki þekktur fyrir það að skafa af hlutunum í dómarahlutverkinu. Þá minnti hann hana á það að hún hafi verið að syngja á íslensku og ætti því að vanda framburðinn. Þrátt fyrir þessa gagnrýni fékk Anna Katrín þrjú já og komst því áfram. Hún óx og dafnaði með hverjum þættinum. Með tímanum tókst henni svo að vinna hug og hjörtu bæði dómnefndar og þjóðarinnar. Klippa: Anna Katrín - Ekkert breytir því „Þú bara hefur þetta“ „Þú ert með svona tónlistarhæfileika sem eru þannig að maður treystir þér bara þegar þú byrjar. Það er allt í lagi þó að þú myndir fara aðeins út fyrir, því þú bara hefur þetta. Ég hef trú á því að þú eigir eftir að vinna þetta,“ sagði Þorvaldur Bjarni við Önnu Katrínu eftir flutning hennar í níu manna úrslitunum í Vetrargarðinum. „Ef þú vinnur ekki þessa keppni verður þú samt poppstjarna,“ bætti Sigga Beinteins við. Sjarmatröllið Anna Katrín komst alla leið í úrslitaþáttinn þar sem hún stóð ein eftir með þeim Kalla Bjarna og Jóni Sigurðssyni. Það var Kalli Bjarni sem stóð uppi sem fyrsta Idolstjarna Íslands og hafnaði Anna Katrín í þriðja sæti sem verður að teljast stórkostlegur árangur. Anna Katrín hefur búið í Danmörku undanfarin áratug. Samkvæmt Facebook-síðu hennar starfar hún í dag sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum þar í landi. Í tilefni þess að fimmta þáttaröð af Idol er nú í fullum gangi mun Vísir rifja upp gömul Idol augnablik sem fara með lesendur aftur til fortíðar og kalla fram sannkallaða nostalgíu. Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fór í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember.
Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fór í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember.
Idol Bíó og sjónvarp Einu sinni var... Tengdar fréttir 1 dagur í Idol: Eftirminnilegir keppendur úr fyrstu þáttaröð Idol Stjörnuleit var haldin í fyrsta sinn hér á landi árið 2003. Þá hafði þátturinn farið sigurför um heiminn og áhuginn hér á landi því gríðarlegur. Um 1400 mans skráðu sig í áheyrnarprufur og freistuðu þess að verða fyrsta Idolstjarna Íslands. 24. nóvember 2022 09:00 4 dagar í Idol: Sextán ára Emmsjé Gauti heillaði dómara en átti ekki heima í Idol Það eru ekki allir sem vita að Emmsjé Gauti, einn allra vinsælasti rappari Íslands, reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit þegar hann var aðeins sextán ára gamall. 21. nóvember 2022 09:02 5 dagar í Idol: Svíður enn að hafa tilkynnt rangan keppanda Þau eru ansi stór fótsporin sem þau Aron Mola og Sigrún Ósk þurfa að feta í í nýrri þáttaröð Idol sem hefur göngu sína á föstudaginn. Kynnarnir Simmi og Jói settu mikinn svip á fyrri þáttaraðir, svo mikinn að þeir voru notaðir sem fordæmi fyrir Idol kynna í öðrum löndum. 20. nóvember 2022 09:01 6 dagar í Idol: Reyndu fyrir sér í Idol áður en þær urðu Nylon stjörnur Það muna allir eftir stúlknasveitinni Nylon en sveitin var eitt vinsælasta stúlknaband sem Ísland hefur getið af sér. Það sem færri vita þó er að tvær af meðlimum Nylon, þær Alma og Steinunn, höfðu reynt fyrir sér í Idol Stjörnuleit áður en Nylon var stofnuð. 19. nóvember 2022 09:02 Mest lesið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Lífið Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Lífið Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Lífið Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Lífið Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Lífið Stiklusúpa: Eins gott að þið spöruðuð frídaga inn í haustið Leikjavísir Taylor Swift trúlofuð Lífið Fleiri fréttir Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Sjá meira
1 dagur í Idol: Eftirminnilegir keppendur úr fyrstu þáttaröð Idol Stjörnuleit var haldin í fyrsta sinn hér á landi árið 2003. Þá hafði þátturinn farið sigurför um heiminn og áhuginn hér á landi því gríðarlegur. Um 1400 mans skráðu sig í áheyrnarprufur og freistuðu þess að verða fyrsta Idolstjarna Íslands. 24. nóvember 2022 09:00
4 dagar í Idol: Sextán ára Emmsjé Gauti heillaði dómara en átti ekki heima í Idol Það eru ekki allir sem vita að Emmsjé Gauti, einn allra vinsælasti rappari Íslands, reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit þegar hann var aðeins sextán ára gamall. 21. nóvember 2022 09:02
5 dagar í Idol: Svíður enn að hafa tilkynnt rangan keppanda Þau eru ansi stór fótsporin sem þau Aron Mola og Sigrún Ósk þurfa að feta í í nýrri þáttaröð Idol sem hefur göngu sína á föstudaginn. Kynnarnir Simmi og Jói settu mikinn svip á fyrri þáttaraðir, svo mikinn að þeir voru notaðir sem fordæmi fyrir Idol kynna í öðrum löndum. 20. nóvember 2022 09:01
6 dagar í Idol: Reyndu fyrir sér í Idol áður en þær urðu Nylon stjörnur Það muna allir eftir stúlknasveitinni Nylon en sveitin var eitt vinsælasta stúlknaband sem Ísland hefur getið af sér. Það sem færri vita þó er að tvær af meðlimum Nylon, þær Alma og Steinunn, höfðu reynt fyrir sér í Idol Stjörnuleit áður en Nylon var stofnuð. 19. nóvember 2022 09:02