Lífslöngunin endurnærð á Reykjalundi Magnús Sigurjón Guðmundsson skrifar 6. desember 2022 12:30 Á túnfleti við endurhæfingarmiðstöðina Reykjalund stendur listaverkið Lífslöngun eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara. Verkið hefur staðið þarna frá því sumarið 1993 og má gera ráð fyrir því að framhjá því hafi gengið tugþúsundir einstaklinga sem hafa þurft á þverfaglegri þjónustu Reykjalundar að halda. Sigurjón myndhöggvari þekkti töframátt stofnunarinnar vel því hann dvaldist á Reykjalundi á 7. áratugi síðustu aldar. Þar gerði hann lítið módel af listaverkinu sem honum dreymdi um að láta reisa í námunda við stofnunina. Nafngift verksins er falleg og segir meira en þúsund orð. Því það er öllum ljóst að lífslöngunin sjálf er endurnærð á Reykjalundi og jafnvel tendruð hjá þeim sem hafa misst lífsþorstann. Þetta eru stór orð en þetta fullyrði ég eftir að hafa dvalið þarna í langan tíma og fengið að bragða á þverfaglegu töframeðali mismunandi fagaðila. Þar kynntist ég fjölmörgum einstaklingum sem þurftu fjölbreytta aðstoð vegna heilsuleysis og allir voru þeir á sama máli og ég. Við erum sammála um að á Reykjalundi sé unnið einstakt fagstarf sem við sem þjóðfélag verðum að standa vörð um. Mér er mjög til efs að nokkur maður óski sér þess að missa heilsuna. Þegar slíkt gerist þá hefst erfitt ferðalag og oft á tíðum upplifum við sjúklingar það að við séum ein á báti. Við fljótum ein á lífsins hafi og ölduhæðin er okkur oft ofviða. Þetta hefur ekki bara áhrif á okkur sjálf heldur líka á fjölskyldur okkar. Börn, maka og aðra sem standa okkur næst. Við reynum að bjarga okkur sjálf með því að troða marvaðann en þegar öldugangurinn verður okkur of erfiður þá fallast okkur hendur. Undirritaður lenti í slysi í desember 2019 sem olli blæðingu inn á heila og glími ég enn við eftirheilahristingsheilkenni. Nú tæpum þremur árum síðar sé ég enn ekki í land. Ég fór fyrst á Grensásdeild Landspítalans, þurfti svo að segja upp vinnunni minni sem ég elskaði af öllu hjarta og fór þaðan yfir til VIRK. Þeim kann ég bestu þakkir og fékk ég þar að dýfa tánni í fjölbreyttar útfærslur af öflugum starfsendurhæfingarúrræðum. Fyrir mann eins og mig, sem er með skert áreitisþol og takmarkaðan þrótt, reyndist það afar slítandi að keyra á milli mismunandi aðkeyptra úrræða sem VIRK bauð upp á. Það var ekki við VIRK að sakast heldur var heilsa mín þannig að í raun hentaði þeirra úrræði mér ekki. Þegar ég gekk svo inn á ganga Reykjalundar í lok sumars á þessu ári þá fyrst tók ég flugið. Þar mætti mér þverfagleg endurhæfing þar sem markmiðið var að efla mig á mínum forsendum. Þar var ég skoðaður í bak og fyrir, takturinn á minni endurhæfingu sleginn í kjölfarið og svo endurmetinn með reglulegum hætti. Þegar gengi endurhæfingarinnar var mér um megn þá var dregið úr, þegar ég fékk aukinn þrótt þá var bætt í. Allsstaðar fékk ég gríðarlega öfluga þjónustu og sáluhjálp. Það er mér ekki léttvægt að segja frá því að lífslöngun mín þegar ég gekk inn á Reykalund var engin. Ég upplifði mig skemmda vöru og byrði á fjölskyldu mína og samfélag. Best væri að kveðja þennan heim. Drífandi og lífsglaði vinnuhesturinn var hættur að geta hlaupið á skeið og þekkti ekki sjálfan sig. Það er erfitt að horfa í spegilinn og þekkja ekki manninn í honum. Það er erfitt að faðma börnin sín og vita ekki hverjir styrkleikar manns eru í foreldrahlutverkinu. Vita ekki hvað maður getur gert og hvert skuli stefna. Fyrir mann í þeirri stöðu er í raun óraunhæft að flakka á milli aðkeyptra úrræða þar sem vitneskjan um heilsubrest manns fylgir ekki með til stjórnanda úrræðisins, sökum laga um persónuvernd. Því þarf maður í þessari stöðu á þjónustu Reykjalundar að halda. Þar er þverfaglegt teymi myndað í kringum hvern og einn einstakling og samtalið og samráðið við sjúklinginn er reglulegt. Þjónustan er klæðskerasniðin að þörfum hvers og eins og einstaklingurinn getur hallað sér í faðm stoðþjónustunnar. Hann er ekki lengur einn úti á öldunnar sjó heldur er kominn um borð í björgunarbát sem leiðir hann í land. Orð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi koma upp í huga minn þegar ég skrifa þessi orð. „Í gegnum móðu og mistur, ég mikið undur sé“. Undrið mitt var Reykjalundur. Enn getum við tekið starfsemi stofnunarinnar sem sjálfsagðri? Þessa stundina sjáum við fréttir af niðurskurði þar sem skerða á þjónustu við börn hjá Reykjavíkurborg með því að stytta opnunartíma félagsmiðstöðva og leggja á niður magnaða starfsemi Sigluness. Við sjáum líka að forstjóri Sjúkratrygginga Íslands hefur sagt upp störfum vegna fjársveltis stofnunarinnar. Stjórnmálamenn kannast væntanlega ekki við neinn fjársvelti, niðurskurð eða þjónustuskerðingar heldur bera fyrir sig breytingar á skipuritum og breyttan tíðaranda sem verið sé að mæta. Ekkert muni bitna á þjónustuþegum og þeir munu bíða eftir að gremja okkar muni falla í gleymskunnar dá. Við þekkjum þessa tuggu. Staðreyndin er aftur á móti sú að með einu pennastriki er hægt að þurrka út allskonar þjónustu sem við teljum nauðsynlega og þykir vænt um. Reynslan sýnir okkur það. Í byrjun september á þessu ári rituðu starfsmenn á starfsendurhæfingarsviði Reykjalundar grein á vef Vísis sem bar yfirskriftina „Vanhugsað pennastrik í heilbrigðisráðuneytinu“. Þar sögðu þeir frá þeirri staðreynd að Sjúkratryggingar Íslands hefðu að ósk heilbrigðisráðuneytis sagt upp samningi um starfendurhæfingu á Reykjalundi. Þar með væri slitinn þráður sem rekja mætti aftur til þess að SÍBS stofnaði Reykjalund árið 1945 sem starfsendurhæfingarúrræði, fyrir berklasjúklinga. Starfsmenn Reykjalundar bentu á að það liti út fyrir að ráðuneytið teldi að starfsendurhæfing ætti frekar heima í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði. Þeir skoruðu á heilbrigðisráðherra að endurskoða ákvörðun sína um að leggja niður starfsendurhæfingarsvið Reykjalundar en ég held að þeir hafi því miður talað fyrir tómum eyrum Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Allaveganna hef ég ekki séð að þessari ákvörðun hafi verið hnekkt. Nú þegar forstjóri Sjúkratrygginga Íslands hefur sagt upp starfi sínu vegna fjársveltis þá fyllist maður óhug. Gætum við verið að horfa upp á enn drastískari niðurskurðaraðgerðir í þessum málaflokki á næstu misserum? Þessi óhugur fékk mig til að stinga niður penna. Ég tel afar mikilvægt að við rýnum til gagns. Hjá VIRK er unnið frábært starf fyrir þá sem það hentar. Aðrir þurfa á Reykjalundi að halda og skora á ég á heilbrigðisráðherra og Ríkisstjórnina alla að standa vörð um bæði þessi úrræði og önnur sambærileg og skera hvergi niður í málaflokknum. Lýðheilsa er okkur mikilvægari en nokkru sinni og eftirköst Covid-faraldursins er enn að leika okkur grátt. Þetta er ekki tíminn til að standa fyrir niðurskurði. Við þurfum að bæta í ef eitthvað er. Þetta er ekki tíminn til að vera í störukeppni á milli ráðuneyta.Tímabundnir plástrar bíta okkur í skottið með enn auknari fjárþörfum í framtíðinni. Allt mitt hrós og þakkir sendi ég til allra starfsmanna á Reykjalundi og stappa í þá stálinu. Fyrir ykkar hjálp hafa einstaklingar eins og ég endurnært lífslöngunina. Þið hafið gefið okkur dýrmætastu gjöfina – sjálfan lífsviljann. Það er ekki metið til fjár! Höfundur er heilabilaður sjúklingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 23.8.2025 Halldór „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar