Englendingar komu ekki tómhentir heim frá Kat(t)ar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2022 13:30 Dave flatmagar við æfingasvæði enska landsliðsins í Katar. getty/Eddie Keogh Þótt Englendingar hafi tapað fyrir Frökkum í átta liða úrslitum á HM koma þeir ekki alveg tómhentir heim frá Katar.
Varnarmennirnir og samherjarnir hjá Manchester City, þeir Kyle Walker og John Stones, tóku nefnilega ástfóstri við villikött sem gerði sér reglulega ferð á æfingasvæði enska landsliðsins í Al Wakrah. Stones nefndi högnann Dave og Walker ákvað að þeir myndu ættleiða hann ef England yrði heimsmeistari. Sá draumur rættist ekki en þeir Stones ákváðu samt að ættleiða Dave. Hann var fluttur til dýralæknis þar sem hann verður bólusettur og prófaður. Svo tekur við fjögurra vikna sóttkví áður en hann getur farið til Englands. „Daginn sem við komum mætti Dave. Á hverju einasta kvöldi sat hann þarna og beið eftir matnum sínum,“ sagði Stones um ferfætta vin þeirra Walkers. Stones og Walker léku báðir allan leikinn þegar England tapaði fyrir Frakklandi, 1-2, á laugardaginn. Þetta er í sjöunda sinn sem Englendingar falla úr leik í átta liða úrslitum á heimsmeistaramótinu, oftar en nokkurt annað lið.
HM 2022 í Katar Kettir Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Fótbolti Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira