Kökudeig Evu Laufeyjar innkallað: „Gjörsamlega miður mín“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 22. desember 2022 11:00 Eva Laufey og framkvæmdastjóri Kötlu eru miður sín vegna málsins. Facebook/Katla Katla hefur gefið út sölustöðvun og innköllun af markaði á smákökudeigi sem fyrirtækið framleiddi í samstarfi við Evu Laufey. Um er að ræða tvær tegundir af kökudeigi sem notið hefur gríðarlegra vinsælda og seldist upp hjá framleiðanda. Fjölmargir hafa tjáð sig um deigið í nokkrum samfélagsmiðlahópum og sagt frá hræðilegri lykt sem gýs upp þegar það er tekið úr umbúðunum. Eva Laufey segist miður sín vegna málsins.
Í Facebook hópnum Matartips skapaðist mikil umræða um málið í gær og þegar þetta er skrifað hafa yfir hundrað manns tjáð sig. Meirihluti þeirra lýsir svipaðri upplifun: vondri lykt sem minnir á ælulykt þegar umbúðirnar eru opnaðar. Rannveig Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Kötlu staðfestir í samtali við fréttastofu að fyrirtækinu hafi borist talsvert af kvörtunum vegna þessa. Hún ítrekar hversu leiðinlegt þeim finnist málið vera og segir að hverjum og einum sé svarað og boðið skaðabætur. Í tilkynningu sem Katla sendi frá sér rétt í þessu segir að „tekin hafi verið ákvörðun um að innkalla Súkkulaðibitakökudeig Evu Laufeyjar og Rjómaostatopp Evu Laufeyjar vegna ólyktar af deigi." Eva Laufey miður sín Eva Laufey tjáði sig um málið á þræðinum á Matartips í gærkvöldi. Þar segist hún gjörsamlega miður sín. „Þetta eru semsagt súkkulaðibitakökurnar og því miður hafa komið upp nokkur tilfelli. Aldrei á ævi minni myndi ég vilja koma ólykt inn á heimilin ykkar eða bjóða upp á ónýtar kökur eða deig. Þetta er grautfúlt!“ Þá segir Eva að Katla sé að taka á málinu og unnið sé að því að finna ástæðuna. Kökudeigin sem um ræðir eru tvenns konar, súkkulaðibitakökur og rjómaostatoppar. 25 þúsund deig seld Kökudeigin sem um ræðir eru tvenns konar, súkkulaðibitakökur og rjómaostatoppar. Hvort tveggja hefur notið gríðarlegra vinsælda og þann 11. desember síðastliðin birti Eva Laufey færslu þar sem hún þakkaði frábærar viðtökur við kökudeiginu. Hún sagði frá því að 25 þúsund kökudeig hefðu verið framleidd og væru nú uppseld hjá framleiðanda. Þá yrði ekki framleitt meira fyrir jól. Uppfært klukkan 12:27: Eva Laufey hefur tjáð sig á Facebook-síðu sinni um málið. „Það er bara alls ekki alltaf gleði og gaman, þannig er það nú bara,“ segir Eva Laufey. „Ég er búin að vera miður mín vegna þess að það hafa verið gölluð deig í umferð og það er alveg ótrúlega glatað að fólk hafi lent í því að baka ónýtar kökur. Katla er með málið í vinnslu og það er verið að vinna í því að finna út hvað gerðist og hvar í ferlinu. Vonandi skýrist það á næstu dögum. Ég bið þá sem fengu skemmt deig að senda tölvupóst á katla@katla.is og ykkur verður bætt þetta upp.“ Það sé hundfúlt að þetta skyldi koma upp eftir tveggja ára þróun sem hafi gengið svo vel. „Er hægt að gráta yfir kökudeigi? Svarið er já Nú ætla ég hins vegar að hætta því og áfram gakk. Stutt í jólin, allir á fullu og ég vona að þið hafið það öll gott.“
Neytendur Innköllun Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Fleiri fréttir ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Sjá meira