Fögnuðu ofan á mótherja sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2022 16:31 Ayo Dosunmu hjá Chicago Bulls lenti ofan á John Collins hjá Atlanta Hawks eftir að hann skoraði sigurkörfuna. Liðsfélagar Dosunmu fögnuðu honum ofan á Collins. Getty/Kevin C. Cox Það eru til slæmir dagar og svo eru þessir einstaklega slæmu dagar eins og einn NBA-leikmaður fékk að upplifa í vikunni.
Sigurkarfa Chicago Bulls á móti Atlanta Hawks vakti athygli og þá ekki síst fyrir örlög eins leikmanns tapliðsins sem fékk að finna fyrir því að hafa sofnað á verðinum í baráttunni um lokafrákastið. View this post on Instagram A post shared by Basketball Forever (@basketballforever) Chicago Bulls liðið átti síðustu sókn leiksins þegar staðan var jöfn, 108-108. DeMar DeRozan tók það sem átti að vera lokaskotið en hann klikkaði á því. Atlanta Hawks leikmaðurinn John Collins var settur inn á völlinn fyrir síðustu vörnina og var í lykilstöðu til að taka frákastið. Hann missti hins vegar af því á einhvern óskiljanlegan hátt. Ayo Dosunmu náði sóknarfrákastinu og tryggði Bulls liðinu 110-108 sigur um leið og klukkan rann út. Það var það sem gerðist eftir körfuna sem vakti einna mesta athygli. Ayo Dosunmu féll nefnilega ofan á John Collins eftir körfuna og svo fór að leikmenn Chicago Bulls hrúguðust allir ofan á þá báða til að fagna sigurkörfunni. Leikmenn Chicago fögnuðu því ofan á mótherja sínum eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by NBA on ESPN (@nbaonespn)
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira