Vill að „síbrotamaðurinn“ Lee Mason verði rekinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. febrúar 2023 11:31 Lee Mason gerði slæm mistök um helgina. getty/Robbie Jay Barratt Yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, Howard Webb, ætti að reka Lee Mason vegna mistaka hans í VAR-herberginu í leik Arsenal og Brentford í fyrradag. Þetta segir fyrrverandi dómarinn og dómarastjórinn Keith Hackett.
Mason varð all svakalega á í messunni í leiknum á laugardaginn er hann leyfði marki Brentford að standa þrátt fyrir að Christian Nörgaard væri rangstæður í aðdraganda þess. Mason gleymdi að teikna rangstöðulínur þegar hann skoraði markið. Leikurinn á Emirates endaði með 1-1 jafntefli og Arsenal varð því af tveimur mikilvægum stigum í toppbaráttunni. „Lee er síbrotamaður og hefur þegar fengið bágt fyrir mistök sem er ekki nógu gott. Eitt það fyrsta sem Webb ætti að gera er að reka hann,“ sagði Hackett. „Lee ætti að vera við botninn á listanum yfir bestu dómarana. Hann ætti ekki að vera þarna lengur. Að vera dómari er erfitt en ef þú ert leikmaður og stendur þig ekki ertu tekinn út úr liðinu. Það sama ætti að gerast með dómara ef þeir standa sig ekki.“ Enskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Webb hafi boðað til neyðarfundar eftir helgina. Brighton varð líka fyrir barðinu á mistökum í VAR-herberginu en löglegt mark var tekið af liðinu í 1-1 jafntefli við Crystal Palace á laugardaginn og þá var Chelsea snuðað um vítaspyrnu í 1-1 jafnteflinu við West Ham United.
Enski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ Sjá meira