Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar Kristján Már Unnarsson skrifar 14. febrúar 2023 21:03 Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Flugfélagsins Atlanta, framan við myndavegginn í Café Atlanta í Kópavogi. Egill Aðalsteinsson Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar.
Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir af því þegar síðasta 747-þotan var afhent frá Boeing-verksmiðjunum við Seattle til bandaríska fraktflugfélagsins Atlas í byrjun mánaðarins. Það var 53 árum eftir að Pan Am tók hana í notkun, fyrst flugfélaga. Síðasta 747-þotan ekur frá Boeing-verksmiðjunni í Everett í Washington-ríki í byrjun mánaðarins.AP/KOMO Sem fyrsta breiðþota heims olli hún straumhvörfum í flugsamgöngum. Stærð hennar og hagkvæmni stuðluðu að því að flugfargjöld lækkuðu og að flugferðir á milli heimsálfa urðu á færi almennings á Vesturlöndum. Sem forsetaflugvél varð hún einnig áhrifamikið tákn í að stimpla Bandaríkin inn sem mesta efnahagsveldi heims. Við upprifjun á sögu hennar birti flugfréttasíðan Simply Flying lista yfir tíu stærstu flugrekendur í gegnum tíðina. Þar er Air Atlanta Icelandic í fjórða sæti, með eitthundrað þotur, á eftir Atlas Air, Japan Airlines og British Airways, en á undan félögum eins og Singapore Airlines, United Airlines og Lufthansa. Air Atlanta hefur haft eitthundrað Boeing 747-þotur í þjónustu sinni á þrjátíu árum.Air Atlanta Í höfuðstöðum Air Atlanta í Hlíðasmára í Kópavogi, í Café Atlanta, má sjá myndir af þotunum sem félagið hefur rekið. Forstjórinn leynir því ekki að Atlanta-menn eru stoltir af því að vera á topp-tíu listanum. „Að sjálfsögðu. Það er ekkert annað hægt,“ svarar Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Flugfélagsins Atlanta. Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Air Atlanta, í viðtali við fréttamann Stöðvar 2 við komu fyrstu Boeing 747-þotu félagsins til Íslands fyrir þrjátíu árum.Pétur P. Johnson „Þetta kemur pínu á óvart þegar maður sér hversu margar vélarnar í raun eru sem eru búnar að rúlla í gegn hjá okkur. Þetta er bara ekkert sjálfgefið. Og þegar þú ræðir við aðra flugrekendur og önnur flugfélög úti í heimi erum við klárlega mjög stórt nafn í þessum rekstri. Jú, jú, við erum auðvitað ánægð með það,“ segir Baldvin en um sexhundruð manns starfa núna hjá félaginu, þar af yfir 250 Íslendingar. Arngrímur framan við fyrstu þotuna við komuna til Keflavíkurflugvallar vorið 1993.Pétur P. Johnson Það vakti þjóðarathygli fyrir þrjátíu árum þegar Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Atlanta, fékk fyrstu tvær júmbó-þoturnar, vorið 1993. „Síðan þá, síðastliðin þrjátíu ár, hefur þetta verið aðalvinnuhesturinn í okkar rekstri,“ segir Baldvin. Langflestar hafa verið skráðar á Íslandi, borið TF-bókstafi landsins, og verið í verkefnum um allan heim en sjást sjaldan hérlendis. Þegar ein þeirra flaug lágt yfir borginni fyrir tveimur árum varð uppnám, svo stór er hún. Núna rekur félagið fjórtán 747-fraktþotur og er um þessar mundir að bæta við tveimur 747-farþegaþotum, sem koma í rekstur í næsta mánuði. Að mati Baldvins á hún enn mörg góð ár eftir. „Ég held að það sé auðvelt að segja að næstu sex til átta árin er ekkert mál að halda áfram að fljúga 747-þotunum, sérstaklega fraktvélunum.“ Fyrsta Atlanta-þotan fékk nafnið Agnar E. Kofoed-Hansen.Pétur P. Johnson „Þetta er „Queen of the Skies“, svo maður sletti, drottning háloftanna. Bæði hvað hún er tignarleg, burðargetan, fluglengdin. Þetta er einstök vél. Og það er synd að síðasta 747-8, sem er nýjasta týpan, sé komin út úr framleiðslu. Vegna þess að það er ekki til nein flugvél, enn þann dag í dag, sem þú getur horft á að komi mjög auðveldlega og taki við því sem 747-vélin er að gera,“ segir forstjóri Flugfélagsins Atlanta. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Boeing Fréttir af flugi Bandaríkin Tímamót Air Atlanta Tengdar fréttir Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. 7. desember 2022 16:20 Fimmtíu ár frá fyrsta flugi júmbó-þotunnar Flugheimurinn fagnar því um helgina að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta flugi Boeing 747 risaþotunnar, fyrstu breiðþotu heims. Júmbó-þotan olli straumhvörfum í flugsamgöngum. 10. febrúar 2019 19:45 Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30 Risaþota full af Íslendingum á EM í Frakklandi "Við erum að fara að fylgjast með Íslandi taka Ungverjana“ 17. júní 2016 14:24 Mest lesið Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Konan sem ekið var á er látin Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Fleiri fréttir Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrða kafbáta „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Konan sem ekið var á er látin Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Tekist á um fangelsismálin og Útvarpsstjóri ræðir framtíð Söngvakeppninnar Sjá meira
Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. 7. desember 2022 16:20
Fimmtíu ár frá fyrsta flugi júmbó-þotunnar Flugheimurinn fagnar því um helgina að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta flugi Boeing 747 risaþotunnar, fyrstu breiðþotu heims. Júmbó-þotan olli straumhvörfum í flugsamgöngum. 10. febrúar 2019 19:45
Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30
Risaþota full af Íslendingum á EM í Frakklandi "Við erum að fara að fylgjast með Íslandi taka Ungverjana“ 17. júní 2016 14:24