Frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu, en hér er um að ræða fyrsta skrefið í útgáfuferli leiksins.
Um er að ræða hlutverkaleik þar sem spilarinn setur sig í hlutverk flotaforingja sem safnar og uppfærir flota til að kanna, skipuleggja og sigra Starborne alheiminn sem er fullur af spennu og bardögum.
Fram kemur að gögn um hegðun spilara verði notuð til að þróa og fínstilla leikinn svo að hann nái tilskildum viðmiðunarmörkum varðandi tekjur og spilatíma hvers notanda.
„Þegar þessum markmiðum hefur verið náð er næsti stóri áfangi félagsins endanleg útgáfa leiksins.
Starborne Frontiers er hannaður fyrir snjalltæki en einnig verður hægt að spila hann í PC-útgáfu á næstu misserum. Um er að ræða hlutverkaleik þar sem spilarinn er í hlutverki leiðtoga sem safnar og uppfærir flota geimskipa til að kanna, skipuleggja og sigra Starborne heiminn sem er fullur af spennu og bardögum,“ segir í tilkynningunni.
Haft er eftir Stefáni Gunnarssyni, forstjóra Solid Clouds, að opnun leiksins fyrir almenning sé risastór áfangi fyrir félagið og teymið sem hafi unnið hörðum höndum að ná þeim markmiðum sem það hafi sett sér.
„Við hlökkum til að fá viðbrögð spilara og hvetjum alla til að ná sér í leikinn frítt. Við nálgumst endanlega útgáfu leiksins en hann á bara eftir að verða betri eftir því sem við ítrum hann áfram,“ segir Stefán.