Blönduósmálið fellt niður á grundvelli neyðarvarnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. mars 2023 11:36 Frá vettvangi á Blönduósi í ágúst í fyrra. Vísir Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru í rannsókn á manndrápi á Blönduósi í ágúst í fyrra. Talið var að sakborningar í málinu hefðu ekki farið út fyrir takmörk sín til leyfilegrar neyðarvarnar. Málið hefði ekki verið líklegt til sakfellis.
Þetta segir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari í samtali við Vísi. Þetta hafi verið niðurstaðan eftir rúmlega tveggja vikna skoðun héraðssaksóknara á málinu. Aðilum málsins var tilkynnt niðurstaðan í dag. Kolbrún segir það mat embættisins að feðgarnir sem höfðu stöðu sakborninga við rannsókn málsins hafi ekki farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar. Hún vísar til 12. greinar almennra hegningarlaga þar sem segir: Það verk er refsilaust, sem menn vinna af neyðarvörn, að því leyti sem það hefur verið nauðsynlegt til þess að verjast eða afstýra ólögmætri árás, sem byrjuð er eða vofir yfir, enda hafi ekki verið beitt vörnum, sem séu augsýnilega hættulegri en árásin og tjón það, sem af henni mátti vænta, gaf ástæðu til. Hafi maður farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar, og ástæðan til þess er sú, að hann hefur orðið svo skelfdur eða forviða, að hann gat ekki fullkomlega gætt sín, skal honum ekki refsað. Þeir sem eiga hagsmuni að gæta í málinu hafa þann kost að kæra niðurstöðu héraðssaksóknara til ríkissaksóknara. Komi ekki til þess telst málinu lokið. Skaut konu til bana Það var þann 21. ágúst sem maður vopnaður afsagaðri haglabyssu fór inn um ólæstar dyr á heimili fjölskyldu á Blönduósi. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Þegar árásarmaðurinn sá að gestir voru á heimilinu fór hann út úr húsinu og fór húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði hann alvarlega. Að því loknu fór árásarmaðurinn inn í húsið og skaut eiginkonu hans í höfuðið, þar sem hún stóð inni í stofu. Hún lést samstundis. Lögreglan á Norðurlandi eystra tók málið til rannsóknar og komst að þeirri niðurstöðu að atburðarásin hefði verið á þann veg sem að ofan greinir. Lét lífið í átökunum Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að húsráðandi hafi náð tökum á árásarmanninum þar sem hann hafi verið að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Til átaka kom milli þeirra en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasanum. Átökin enduðu með því að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök árásarmannsins var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst. Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínunnar og óskaði eftir aðstoð vegna árásarmannsins klukkan 5:27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögreglan var ekki kominn á vettvang fyrr en 5:53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni. Lögregla segir að rannsókn hafi ekki leitt í ljós hvað nákvæmlega hafi gengið árásarmanninum til. Hann hafi verið einn að verki, allsgáður og átt vinsamleg samskipti við árásarþola fyrir árásina. Tvisvar hafi tilkynningar borist um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum, um tveimur vikum áður en hann lét til skarar skríða. Þar hafi hann meðal annars tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn. Leitaði sér heilbrigðisaðstoðar en fór svo aftur á Blönduós Byssumaðurinn er sagður hafa afhent lögreglu skotvopn sem skráð voru á hann og leitað sér heilbrigðisaðstoðar. Hinn 12. ágúst 2022 hafi hann hins vegar verið aftur kominn á Blönduós. Haglabyssan sem notuð var við verknaðinn var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota fyrir fimmtán árum síðan. Fram kemur að þrjár byssur hafi enn verið skráðar á fyrirtækið, byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og loks haglabyssa af gerðinni Maveric M-88 sem enn er ófundin. Héraðssaksóknari tók við málinu af Lögreglunni á Norðurlandi eystra þann 10. febrúar. Undanfarnar rúmar tvær vikur hefur héraðssaksóknari haft málið til skoðunar en komst svo að niðurstöðu sinni í dag.
Lögreglumál Manndráp á Blönduósi Húnabyggð Tengdar fréttir Rannsókn lögreglu á Blönduósi lokið: Tók lögregluna 26 mínútur að mæta á staðinn Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang. 10. febrúar 2023 17:23 Söfnun sett af stað fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Opnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Pétursdóttur sem lést eftir skotárás á Blönduósi þann 21. ágúst. 31. ágúst 2022 14:44 „Erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem við erum að upplifa núna“ Uppkomin börn hjónanna sem urðu fyrir skotárás á Blönduós á sunnudag segja það erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem þau séu að upplifa núna. 23. ágúst 2022 08:24 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira
Rannsókn lögreglu á Blönduósi lokið: Tók lögregluna 26 mínútur að mæta á staðinn Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang. 10. febrúar 2023 17:23
Söfnun sett af stað fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Opnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Pétursdóttur sem lést eftir skotárás á Blönduósi þann 21. ágúst. 31. ágúst 2022 14:44
„Erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem við erum að upplifa núna“ Uppkomin börn hjónanna sem urðu fyrir skotárás á Blönduós á sunnudag segja það erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem þau séu að upplifa núna. 23. ágúst 2022 08:24