Innlent

Tölvu­­púki lét lík­­kistu­­fé­lag ráð­herra hverfa úr hags­muna­­skrá

Kjartan Kjartansson skrifar
Innflutningsfyrirtæki í eigu Jóns Gunnarssonar datt út úr hagsmunaskráningu hans vegna ótengdra breytingar sem hann gerði á skráningunni vorið 2021 samkvæmt upplýsingum skrifstofu Alþingis.
Innflutningsfyrirtæki í eigu Jóns Gunnarssonar datt út úr hagsmunaskráningu hans vegna ótengdra breytingar sem hann gerði á skráningunni vorið 2021 samkvæmt upplýsingum skrifstofu Alþingis. Vísir/Arnar

Galli í tölvukerfi sem ráðherrar nota til þess að skrá hagsmuni sína olli því félag í eigu Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra, féll út úr hagsmunaskráningu hans. Annar óþekktur galli veldur því að ráðherrann hefur ekki getað leiðrétt skráninguna.

Við umræður um ákvörðun Jóns um að ræða við Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma um að halda áfram rekstri bálstofu á Alþingi fyrr í þessum mánuði kom fram að ekki kæmi fram í hagsmunaskráningu hans að hann væri eigandi félags flytti inn og seldi líkkistur. Sökuðu þingmenn Pírata hann um hagsmunaárekstur í málinu.

Félagið Mar Textil hafði þó verið á hagsmunaskráningu Jóns árið 2021. Jón sagði að skráningin á því hefði dottið út fyrir mistök einhverra hluta vegna.

Skrifstofa Alþingis staðfestir nú að dálkur um svokallaða tekjumyndandi starfsemi hafi dottið út úr hagsmunaskráningu Jóns þegar hann gerði breytingar á henni í maí 2021. Það er rakið til galla í eldra kerfi sem þá var í notkun. Breytingar sem Jón gerði tengdust ekki Mar Textil heldur stjórnarsetu og hlutafjáreign í öðrum félögum.

Heimildin sagði fyrst frá.

Nýtt kerfi fyrir hagsmunaskráningu var tekið í notkun í haust. Óþekktur galli í því veldur því ennfremur að dómsmálaráðherra hefur ekki getað lagfært hagsmunaskráninguna. Skrifstofa Alþingis segir að unnið sé að því að leysa það vandamál.

Uppfært 11:00 Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar sagði að skráning Mar Textil hefði dottið út þegar skrifstofa Alþingis tók í notkun nýtt kerfi fyrir hagsmunaskráninguna árið 2022. Það rétta er að skráningin datt út þegar ráðherra gerði breytingar í eldra kerfi vorið 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×