Innlent

Tillaga um vantraust á hendur Jóni felld

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra situr sem fastast.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra situr sem fastast. Vísir/Vilhelm

Tillaga fulltrúa stjórnarandstöðunnar á Alþingi var felld í atkvæðagreiðslu á þingi á öðrum tímanum í dag. 35 þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni og 22 með tillögunni. Einn þingmaður greiddi ekki atkvæði og fimm voru fjarverandi.

Umræður um tillöguna hófust klukkan 10:30 í dag og varð þá fljótlega ljóst að meirihluti þingheims myndi styðja ráðherrann. Flutningsmenn tillögunnar sögðu ráðherrann hafa brotið gegn einni af grunnstoðum þingræðisins, en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði deiluna hins vegar lögfræðilega og ekki grundvöll til vantrausts.

Flutningsmenn tillögunnar voru Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata, Þórunn Sveinbjarnardóttir í fjarveru Loga Einarssonar þingflokksformanns Samfylkingarinnar, Guðmundur Ingi Kristinsson þingflokksformaður Flokks fólksins og Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar.

Þingmenn þessara fjögurra flokka hafa deilt hart á Jón fyrir að hafa komið í veg fyrir að Alþingi fengi gögn til lagasetningar í tengslum við afgreiðslu Alþingis á umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt. Jón hafi margsinnis lýst því yfir opinberlega að hann hefði sagt Útlendingastofnun að afhenda allsherjar- og menntamálanefnd ekki gögnin.

Miklar umræður voru á Alþingi fyrr í vikunni eftir að Þórunn gerði grein fyrir minnisblaði frá skrifstofu Alþingis um vægi þingskaparlaga gagnvart öðrum lögum. Þórunn sagði minnisblaðið staðfesta að enginn, hvorki dómsmálaráðherra né aðrir, væri undanþegin því að afhenda Alþingi gögn vegna lagasetningar væri þess óskað. Óskað var eftir áliti skrifstofu Alþingis vegna deilna þingmanna og allsherjar- og menntamálanefndar við dómsmálaráðherra í tengslum við afhendingu gagna frá Útlendingastofnun um umsækjendur til þingsins um ríkisborgararétt. Eftir að minnisblaðið var lagt fram var vantrauststillagan lögð fram.

Úr þingsal fyrr í dag.Vísir/Vilhelm

Eftirfarandi þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni:

  • Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Eva Sjöfn Helgadóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðbrandur Einarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Hilda Jana Gísladóttir, Inga Sæland, Jóhann Páll Jóhannsson, Katrín Sif Árnadóttir, Lenya Rún Taha Karim, Oddný G. Harðardóttir, Sigmar Guðmundsson, Thomas Möller, Viðar Eggertsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir

Eftirfarandi þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni: 

  • Ágúst Bjarni Garðarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Ásmundur Friðriksson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Birgir Ármannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarni Benediktsson, Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Haraldur Benediktsson, Ingibjörg Isaksen, Jódís Skúladóttir, Jón Gunnarsson, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Orri Páll Jóhannsson, Óli Björn Kárason, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn Stefánsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Willum Þór Þórsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Greiddi ekki atkvæði: 

  • Tómas A. Tómasson

Eftirfarandi þingmenn voru fjarverandi:

  • Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Bjarni Jónsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Tengdar fréttir

Allar líkur á að vantraust verði fellt

Allar líkur eru á að vantrauststillaga fjögurra stjórnarandstöðuflokka á dómsmálaráðherra verði felld í atkvæðagreiðslu á Alþingi síðar í dag. Tillöguflytjendur segja ráðherrann hafa brotið gegn einni af grunnstoðum þingræðisins. Forsætisráðherra segir deiluna hins vegar lögfræðilega og ekki grundvöll til vantrausts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×