Norski olíusjóðurinn seldi stóran hluta eigna sinna í íslenskum ríkisbréfum
![Áætla má að olíusjóðurinn hafi selt ríkisbréf á íslenska ríkið fyrir jafnvirði um átta milljarða króna í fyrra.](https://www.visir.is/i/D2468B9777878917BAAF73D10457C1D08784B071647C65A8983E13C9C32E3E71_713x0.jpg)
Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, seldi nærri helming allra skuldabréfa sem hann átti á íslenska ríkið á liðnu ári á sama tíma og hann jók talsvert við stöðu sína í skuldabréfum á bankanna hér á landi. Verðbréfaeign sjóðsins á Íslandi, sem nemur jafnvirði um 30 milljarðar króna, hélst nánast óbreytt á milli ára.