Fótbolti

Leika í bjórbúningi á Íslandsmótinu í sumar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Þeir Sindri og Halldór Orri eru ánægðir með nýja treyju KFG.
Þeir Sindri og Halldór Orri eru ánægðir með nýja treyju KFG. Vísir

Búningar sem KFG mun leika í í 2.deildinni í knattspyrnu í vetur hafa vakið verðskuldaða athygli en félagið ákvað að búa til sinn eigin búning fyrir tímabilið.

Knattspyrnufélag Garðabæjar fór óhefðbundnar leiðir þegar kom að því að hanna búninga félagsins fyrir komandi leiktíð. Formaður félagsins segist hafa haft efasemdir en leist þó vel á hugmyndina. Svava Kristín hitti forsvarsmenn félagsins að máli í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld.

„Við ákváðum að fara nýja leið þegar við vorum að búa til búninga fyrir þetta tímabil og ákváðum að búa þá til sjálfir. Halli Egis, pílugoðsögn, hefur verið í því að hanna pílutreyjur og við köstuðum hugmyndum á milli og hann kom með þessa. Að gera styrktaraðilanum hátt undir höfði og hafa hana sem bjórglas,“ sagði Sindri Rósenkranz Sævarsson formaður KFG en að sjálfsögðu kemur fram á búningnum að um léttöl er að ræða.

Halldór Orri Björnsson á langan feril að baki í efsta deild þar sem hann hefur spilað yfir tvöhundruð leiki með Stjörnunni og FH. Hann gekk til liðs við KFG fyrir tímabilið og segir þetta líklega skrautlegustu treyjuna sem hann hefur klæðst á knattspyrnuvellinum.

„Þetta er glæsileg treyja og það fór vel af stað, við unnum 7-0 í fyrsta leik sem við spiluðum í henni. Það vonandi gefur góð fyrirheit fyrir sumarið.“

KFG-menn eiga von á því að búningur liðsins verði vinsæll.

„Mér skilst að það sé búið að rigna inn fyrirspurnum til Sindra síðan treyjan var kynnt. Ætli þetta verði ekki bara vinsælasta treyjan í Dalnum á Þjóðhátíð í sumar,“ bætti Halldór Orri við.

Lengri útgáfu af viðtali Svövu Kristínar við þá Sindra og Halldór Orra má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×