Innlent

Hand­teknir vegna gruns um sölu á fíkni­efna­hlaup­böngsum

Atli Ísleifsson skrifar
Mennirnir eru grunaðir um að hafa komið kannabisefni fyrir í hlaupböngsum og súkkulaði.
Mennirnir eru grunaðir um að hafa komið kannabisefni fyrir í hlaupböngsum og súkkulaði. Getty

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á dögunum tvo menn karlmenn um þrítugt vegna rannsóknar á máli sem snýr að umfangsmikilli sölu og dreifingu fíkniefna þar sem kannabisefni hafi verið komið fyrir í hlaupböngsum og súkkulaði.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að töluvert magn þessara efna, eða sælgætis, hafi verið haldlagt við húsleit á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki hafi lögregla tekið í sína vörslu mikið af vape hylkjum, pennum og vökva sem innihélt THC.

„Grunur er um að sömu aðilar hafi jafnframt stundað sölu og dreifingu kannabisefna með þeim hætti, en við fyrrnefndar aðgerðir var einnig lagt hald á reiðufé. Tveir karlmenn um þrítugt voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, sem miðar vel, en hinir sömu eru nú lausir úr haldi.

Lögreglan hvetur foreldra/forráðamenn til að vera á varðbergi og ræða við börn sín um þær hættur sem fylgja þegar fíkniefni eru annars vegar. Mál sem þetta er ekki einsdæmi, en önnur af sama toga hafa líka komið upp í öðrum lögregluumdæmum.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.


Tengdar fréttir

Óttast að fíkniefnabangsarnir finnist víða

Hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni eru í umferð á Norðurlandi vestra. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Ekki hefur fundist bein tenging við hlaupbangsamálið á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×