Tvenna frá Alexöndru í sigri á Juventus Smári Jökull Jónsson skrifar 21. maí 2023 14:48 Sara Björk Gunnarsdóttir reynir hér að komast frá tæklingu Alexöndru Jóhannsdóttur í leiknum í dag. Vísir/Getty Alexandra Jóhannsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Fiorentina þegar liðið vann sigur á Söru Björk Gunnarsdóttur og samherjum hennar í Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.
Alexandra og Sara Björk voru báðar í byrjunarliðum sinna liða í dag en leikurinn fór fram á heimavelli Fiorentina í Flórens. Juventus var fyrir leikinn búið að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári, liðið var í öðru sæti deildarinnar með 51 stig en Fiorentina í því fjórða með 39 stig. Fyrra mark Alexöndru í dag var fyrsta mark leiksins. Hún skoraði það á 36. mínútu en undir lok fyrri hálfleiks skoraði Juventus tvö mörk á skömmum tíma og leiddi 2-1 í hálfleik. Barbara Bonansea og Lineth Beerensteyn voru þar á ferðinni. Milica Mijatovic jafnaði metin fyrir Fiorentina á 47. mínútu og tíu mínútum síðar skoraði Alexandra sitt annað mark í leiknum og kom Fiorentina í 3-2 forystu. Alexandra og Sara Björk voru báðar teknar af velli þegar um tuttugu mínútur voru eftir en hin spænska Veronica Boquete innsiglaði 4-2 sigur heimaliðsins undir lokin með marki úr vítaspyrnu. Lokatölur 4-2 og Fiorentina komið upp í þriðja sæti deildarinnar. Ein umferð er eftir af deildarkeppninni en Juventus á þar að auki eftir að mæta Roma í úrslitaleik bikarkeppninnar þann 4. júní.
Ítalski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira