Erilsöm nótt hjá lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2023 07:35 Einn var handtekinn eftir að hann hoppaði á þaki og vélarhlíf bíls í miðbænum og var öðrum manni í annarlegu ástandi vegna ölvunar og fíkniefna vísað af hóteli í miðbænum. Vísir/Vilhelm Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt en 120 mál voru skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá fimm í gærkvöldi til fimm í nótt. Þar af snerust mörg um umferð og bíla, þar sem fólk var stöðvað vegna öryggisbelta, nagladekkja ljósa og aksturs án ökuréttinda.
Fimm voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn ökumaður var fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu á Heiðmerkurvegi. Lögregluþjónar voru kallaðir til aðstoða á Lækjartorgi þar sem maður svaf ölvunarsvefni. Hann var ekki sáttur við að verða vakinn og réðst að lögregluþjónum, sem handtóku hann og fluttu í fangaklefa. Þá keyrðu lögregluþjónar minnst tvö ofurölvi menn heim í nótt en annar þeirra hafði dottið og slasað sig. Einn var handtekinn eftir að hann hoppaði á þaki og vélarhlíf bíls í miðbænum og var öðrum manni í annarlegu ástandi vegna ölvunar og fíkniefna vísað af hóteli í miðbænum. Lögreglunni barst einnig tilkynning um að krakkar væru að kveikja í rusli í undirgöngum á Völlunum en sá eldur var lítill og hlaust ekkert tjón af honum. Þá var einni handtekinn í Grafarholti vegna líkamsárásar og eignaspjalla. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangaklefa svo skýrslutaka gæti farið fram þegar ástand hans lagast.
Lögreglumál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira