Lögregla skoðar upptökur af árásinni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. júní 2023 16:33 Lögregla segir að skýrslutöku hins grunaða sé lokið. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar nú myndbandsupptökur skemmtistaðarins þar sem maður lést eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur aðfararnótt laugardags. Enn á eftir að ræða við nokkur vitni en lögregla telur ekkert benda til þess að árásina megi rekja til þjóðernis hins látna.
Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild, staðfestir í samtali við Vísi að búið sé að taka skýrslu af hinum grunaða í málinu. Áður hefur verið greint frá því að hinn látni hafi verið litáískur. Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. Eiríkur segir að ekkert bendi til þess að árásina hafi mátt rekja til þjóðernis mannsins. Aðdragandinn sé enn til rannsóknar. Hann segir hinn látna hafa verið búsettan hér á landi. Þá segist Eiríkur ekki geta staðfest að aðeins eitt högg hafi orðið manninum að bana, líkt og DV fullyrðir, né heldur að sá grunaði sé hnefaleikakappi. Enn sé lögregla að ræða við vitni að árásinni. Eiríkur segir töluverðan fjölda hafa verið inni á skemmtistaðnum þegar árásin átti sér stað. Málið sé ólíkt öðrum manndrápsmálum sem lögregla hafi til rannsóknar. Eiríkur staðfestir jafnframt að lögregla fari nú yfir myndbandsupptökur úr eftirlitsmyndavélakerfi skemmtistaðarins. Frekari upplýsingar verði gefnar um rannsóknina þegar þær liggi fyrir.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Sjá meira