Innlent

Leita á náðir stjórnarþingmanna ef Katrín svarar ekki kallinu

Eiður Þór Árnason og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa
Hanna Katrín Friðriksdóttir, þingflokksformaður Viðreisnar, segir áríðandi að þingheimur fái að ræða Íslandsbankasöluna, Lindarhvolsmálið og hvalveiðibannið sem fyrst.
Hanna Katrín Friðriksdóttir, þingflokksformaður Viðreisnar, segir áríðandi að þingheimur fái að ræða Íslandsbankasöluna, Lindarhvolsmálið og hvalveiðibannið sem fyrst. Vísir/Vilhelm

Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna fimm hafa sent kröfu á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um að þing verði kallað saman á næstu dögum. Þingflokksformaður Viðreisnar segir að verði forsætisráðherra ekki við beiðni stjórnarandstöðunnar muni hún leitast eftir að fá meirihluta þingmanna til að fara fram á slíkt.

„Frá því að þingið var sett óvanalega snemma í sumarfrí í ár þá hafa komið upp á yfirborðið upplýsingar sem varpa ljósi á nokkur stór mál sem hafa verið í deiglunni lengi, það er að segja Lindarhvolsmálið sem varðar sölu á fjölmörgum ríkiseignum, það varðar söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka og síðan aðdragandann að hvalveiðibanninu.“

„Allt eru þetta mál sem stjórnvöld koma á einn eða annan hátt að og þingið og það er bara gríðarlega mikilvægt að við komum saman núna en ekki einhvern tímann í lok september, byrjun nóvember til þess að ræða þessi mál og taka afstöðu til þeirra,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, í samtali við fréttastofu.

Það sé mjög slæmt að stjórnvöld móist við og standi vörð um þau vinnubrögð sem upplýst hafi verið um í sumum þessara mála.

„Og líka að þau standi í veginum fyrir því að þau mál og önnur séu opinberuð, það er að segja að upplýsingarnar komi upp á yfirborðið og þingið taki afstöðu til þess hvernig við vinnum málin áfram.“

Vonar að þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vilji ræða hvalveiðimálið

Ef forsætisráðherra hafnar beiðni þingflokksformanna stjórnarandstöðuflokkanna þá þarf meirihluti þingmanna að samþykkja að þing komi saman.

Hann segir að þó pólitíska línan í Íslandsbankamálinu og Lindarhvolsmálinu virðist vera skýr milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu sé það ekki svo í hvalveiðimálinu þar sem þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafa gagnrýnt þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að gera tímabundið hlé á hvalveiðum.

„Ef menn eru sjálfum sér samkvæmir þá ættu þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að styðja þessa beiðni okkar og það er óskandi,“ segir Hanna Katrín.

Forsætisráðherra sagðist í gær ekki eiga von á því að hún muni kalla saman þing vegna birtingar á greinargerð um starfsemi Lindarhvols. Þingmenn Miðflokksins höfðu þá sent erindi til for­sætis­ráð­herra þar sem óskað var eftir því að hún myndi leggja fram til­lögu til for­seta Ís­lands þess efnis að þing yrði kvatt saman til að ræða þær upp­lýsingar sem fram kæmu í greinargerðinni.

„Ég á nú ekki von á því að ég kalli saman þing. Tel ekki að það sé vilji meirihlutans. En Miðflokknum verður að sjálfsögðu svarað síðar í dag,“ sagði Katrín að loknum ríkisstjórnarfundi í gær.

Ríkisstjórnin lítið spennt fyrir því að kalla þing saman

Stjórnarliðar hafa síðustu daga gefið lítið fyrir þær hugmyndir stjórnarandstöðunnar að þing verði kallað saman í sumar. Hanna Katrín telur að þetta sé í besta falli merki um einhvers konar sinnuleysi gagnvart hlutverki stjórnvalda.

„Það er auðvitað ekki þannig að það sé ekki mál stjórnvalda þegar verið er að selja ríkiseigur fyrir hundruð milljarða. Það skiptir máli að það takist vel til og það skiptir líka máli hvernig aðdragandinn og sjálft ferlið lítur út, það er að segja að það sé vandað til verka og bara bókstaflega að við vitum hvað við erum að gera og fyrir hverja við erum að vinna þessi mál.“

Alvarlegt að illa hafi gengið að fá upplýsingar

Þingflokkur Viðreisnar hefur ásamt öðrum stjórnarandstöðuflokkum lengi kallað eftir því að skipuð sé sérstök rannsóknarnefnd til að skoða söluna á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Á dögunum var svo birt greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol, sem sá um umsýslu og sölu stöðuleikaeigna sem ríkið eignaðist eftir gjaldþrot gömlu viðskiptabankanna. Í greinargerðinni gagnrýnir settur ríkisendurskoðandi skort á upplýsingagjöf um starfsemi Lindarhvols.

„Það er náttúrulega mjög alvarlegt mál. Svo þetta er það sem þarf að skoða vel og við þurfum að nýta tímann núna. Þetta tæki ekki langan tíma, við erum ekki að tala um að þing komi saman núna og sé hérna næstu vikurnar. Við þurfum bara að fara í saumana á þessu máli og taka ákvörðun um framhaldið af því að það er óumdeilt að ábyrgðin liggur hjá þinginu,“ segir Hanna Katrín.


Tengdar fréttir

Stjórnarandstaðan biður Katrínu um að kalla þing saman

Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar á Alþingi hafa óskað eftir því við forsætisráðherra að gerð verði tillaga til forseta Íslands um að kalla þing saman aftur. Formennirnir segja að þingið þurfi að taka þrjú mál til umræðu.

„Stór­glæsi­leg niður­staða fyrir ríkis­sjóð“

Fjármálaráðherra segir uppgjör Lindarhvols stórglæsilega niðurstöðu fyrir ríkissjóð. Píratar hafi ekki sett gott fordæmi fyrir þingið með birtingu greinargerðarinnar. Þingflokksformaður Miðflokksins segir svör ráðherra óboðleg.

Mál málanna á manna­máli

Lindarhvoll og leyndarhyggjan í kringum greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi félagins hafa verið milli tannanna á fólki undanfarið. En hvað er Lindarhvoll og hvers vegna vildi forseti Alþingis alls ekki að greinargerðin yrði birt?

Vilja að þing verði kallað saman vegna Lindar­hvols

Þing­menn Mið­flokksins hafa óskað eftir því við for­sætis­ráð­herra að hann leggi fram til­lögu til for­seta Ís­lands þess efnis að þing verði kvatt saman til að ræða þær upp­lýsingar sem fram koma í ný­birtri Lindar­hvols­skýrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×