„Þetta er í fyrsta skiptið sem við lendum í því að vara skemmist í flutningum, er endurfryst og síðan seld til okkar viðskiptavina. Þetta voru þrír dagar sem ísbíllinn seldi þennan ís,“ segir Ásgeir Baldursson, eigandi Ísbílsins. Hann hafi hingað til selt ís áfallalaust síðan árið 1994.
Fyrirtækið sendi frá sér tilkynningu á samfélagsmiðlum vegna málsins. Þar eru viðskiptavinir beðnir um að fylla út endurgreiðsluform á vef fyrirtækisins en hægt verður að sækja um endurgreiðslu til og með mánudagsins 21. ágúst. Um 34 vörutegundir var að ræða, að mestu ís en einnig fisk líkt og harðfisk, ýsuflök og þorskflök.
Ásgeir segist ekki hafa tölu þeirra sem keyptu gallaðar vörur á hreinu. „En við erum búin að fá inn alveg slatta af endurgreiðslubeiðnum. Þetta er alveg ferleg aukavinna, maður þarf nánast að sinna þessu á eigin tíma,“ segir Ásgeir.
Allir sem keypt hafi vörur sem hafi verið hluti af þessari tilteknu sendingu muni fá endurgreitt óski þeir þess, óháð því hvort vörurnar voru í lagi eða ekki. Ásgeir segist telja að líklega hafi meirihlutinn skemmst í afþýðingunni.
„Það voru nokkrar vörur í miðju brettinu sem ekki voru orðnar ónýtar. Allt sem var utan við, það var allt hálf bráðið og ógeðslegt. Síðan er þetta endurfrosið og þá er loft farið úr ísnum, hann er harður og bara hægt að nota hann í shake, ef eitthvað.“
Áður hafi komið upp allskonar mistök við sendingu á ís til Ísbílsins, en þau hafi alltaf uppgötvast mun fyrr. „Þetta er bara eitt af þessu sem kemur fyrir í öllu svona, þar sem fólk kemur saman, þar verða mistök gerð.“
Vörurnar sem um ræðir og seldar voru þessa daga:
Ofurpakkinn
Toppapakkinn
Djæfpakkinn
Ísbílapakkinn
Ísbátar
Tívolí lurkar
Snæfríður
Lúxus Toppapakkinn
Lúxus Pinnapakkinn
Hlunkapakkinn
Flaugapakkinn
Tröllapakkinn
Barnapakkinn
Íssamlokur
Mega Hit möndlu
Pirulo Vatnsmelónuís
Regnbogi
Monster
Draugaís
Konfetti
Hindberjatoppar
Rjómastangir
Valsoia Hafratoppar
Valsoia Pistasíupinnar
Valsoia Íssmákökur
DelMonte Mango Smoothie
DelMonte Hindberja Smoothie
Fisherman Fiskibollur
Fisherman Gellur
Fisherman Þorskur í tempura
Harðfiskur Steinbítur
Rækja
Ýsuflök
Þorskflök