Lést eftir að hafa verið send út í kofa á blæðingum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. ágúst 2023 09:34 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty Sextán ára stúlka lést í Nepal á miðvikudag eftir að hafa verið látin dvelja í litlum kofa fyrir utan heimili sitt vegna þess að hún var á blæðingum. Anita Chand lá sofandi í skýlinu þegar snákur beit hana og lést í kjölfarið.
Um er að ræða siðvenju sem hefur sætt mikilli gagnrýni síðustu ár en aðgerðasinnar óttast að hún sé að ryðja sér rúms á ný eftir nokkuð undanahald. Chand er fyrsta stúlkan til að látast sökum „chhaupadi“ frá 2019. „Chhaupadi“ grundvallast á þeirri trú að stúlkur og konur séu „óhreinar“ og „ósnertanlegar“ á meðan þær hafa blæðingar. Á meðan þeim stendur er þeim óheimilt að gera fjölda hluta og þá hafa margar þeirra mátt þola að vera sendar út í skýli eða kofa og vera þar. Eftir mikil mótmæli var siðvenjan bönnuð og gerð refsiverð árið 2005. Lögregluyfirvöld segjast hafa dauðsfall Chand til rannsóknar en fjölskylda hennar hefur neitað því að hún hafi verið á blæðingum. Parwati Budha Rawat, 21 árs, lést árið 2019 eftir að hafa dvalið í þrjár nætur í skýli. Hún var fimmta konan sem lést sökum „chhaupadi“ það árið. Dánarmein þeirra sem hafa látist völdum siðvenjunar eru fjölbreytt, allt frá köfnun til dýraárása. Dauðsfall Rawat varð til þess að setja af stað öldu mótmæla og þúsundir skýla og kofa voru eyðilögð. Aðgerðasinnar segja vitundarvakninguna hins vegar hafa lognast útaf þegar kórónuveirufaraldurinn fór af stað og að kofarnir séu farnir að rísa á ný. Þeir segja að stjórnvöld þurfi að gera meira en að dreifa tíðarvörum til stúlkna og kvenna, ekki síst að framfylgja lögunum sem banna útskúfun þeirra.
Nepal Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira