Sekta Samskip um 4,2 milljarða vegna samráðs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 31. ágúst 2023 18:07 Samskip segir um að ræða alvarlega atlögu að félaginu. Vísir/Vilhelm Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða og telur fyrirtækið hafa með alvarlegum hætti brotið gegn samkeppnislögum með ólögmætu samraði við Eimskip. Samskip hafnar niðurstöðu eftirlitsins.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að Samskip hafi auk þess við rannsókn málsins brotið gegn 19. grein samkeppnislaga með rangri, villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu. Samkeppniseftirlitið leggur fyrir Samskip að grípa til tiltekinna aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frekari brot og efla samkeppni. „Samráðið í heild sinni var til þess fallið að gera fyrirtækjunum kleift að draga með afdrifaríkum hætti úr samkeppni og hækka eða halda uppi verði gagnvart viðskiptavinum fyrirtækjanna, til dæmis með hækkun við endurnýjun samninga, hækkun á gjaldskrám og þjónustugjöldum, upptöku nýrra gjalda, lækkun afslátta og svo framvegis,“ segir í áliti Samkeppniseftirlitsins. „Sameiginleg yfirburðastaða Eimskips og Samskipa á markaðnum, samskipti stjórnenda fyrirtækjanna og aðrir þættir í samráði fyrirtækjanna sköpuðu kjöraðstæður fyrir fyrirtækin til að ná árangri í samráðinu og hagnast á kostnað viðskiptavina og samfélagsins alls.“ Fordæma niðurstöðuna Samskip hafna niðurstöðu rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á ætluðu samráði Eimskips og Samskipa á árunum 2006 til 2013, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að ályktanir um víðtækt og þaulskipulagt samráð séu með öllu tilhæfulausar og úr tengslum við gögn og staðreyndir. Samskip fordæma vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins við rannsóknina og hyggjast fá niðurstöðunni hnekkt. Starfsemi Samskipa hafi ávallt grundvallast á samkeppni á öllum mörkuðum og félagið leiðandi í að skapa virka samkeppni og hagkvæmar lausnir í flutningum og tengdri þjónustu. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsinser sögð einkennast af hálfsannleika, villandi framsetningu og rangfærslum. Rannsókn eftirlitsins hafi staðið yfir síðan frá 2010 og ráðist í húsleitir hjá fyrirtækjunum. „Samanlagt voru andmælaskjölin á þriðja þúsund blaðsíður og fylgiskjöl skiptu tugum þúsunda. Samskip skiluðu ítarlegum efnislegum athugasemdum við andmælaskjölin og sýndu fram á að frumniðurstöður Samkeppniseftirlitsins væru í grundvallaratriðum rangar. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins og ákvörðun um sektargreiðslur lá svo fyrir nú 31. ágúst.“ Eimskip hafi talið farsælast að ljúka málinu með sátt Fyrir liggi að Eimskip hafi lokið málinu með sátt við Samkeppniseftirlitið í júní 2021, þrátt fyrir að hafa áður haft uppi hörð andmæli gegn málsmeðferð og efnislegum ályktunum Samkeppniseftirlitsins. Samskip segjast telja ljóst að ákvörðun Eimskips hafi ekki byggt á efni málsins heldur mati nýrra stjórnenda félagsins á því hvað væri farsælast fyrir rekstur þess næstu árin. „Umhugsunarefni er ef ráðandi fyrirtæki á markaði getur með þessum hætti notað digra sjóði til að kaupa það frá frekari málsmeðferð. Þá er alvarlegur hlutur ef löng og þung málsmeðferð og miklar valdheimildir eftirlitsstjórnvalda geta orðið til þess að fyrirtæki kjósi heldur að játa sök og greiða sekt, án þess að efni séu til, en að leiða hið rétta og sanna í ljós fyrir æðra stjórnvaldi eða dómstólum.“ Þá segir Samskip að vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins í málinu séu vonbrigði. Málsmeðferðin hafi verið þung og haft lamandi áhrif á starfsemi og starfsfólk Samskipa. „Stofnunin hefur farið offari við rannsókn málsins og gagnaöflun og hefur nú komist að niðurstöðu sem ekki er í nokkrum tengslum við raunveruleikann. Settar eru fram kenningar og ályktanir um brot án þess að beinum sönnunargögnum sé til að dreifa. Kenningum hefur verið fundin stoð með því að fara beinlínis rangt með efni gagna eða staðreyndir máls eða með augljósum rangtúlkunum. Samskip munu ekki una niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og mun félagið leita allra úrræða sem því eru tæk að lögum til að fá henni hnekkt.“
Samkeppnismál Skipaflutningar Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Mest lesið „Af hverju fara Hafnfirðingar með stiga í búð?“ Atvinnulíf Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Neytendur Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni Viðskipti innlent Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Viðskipti innlent Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Samstarf Kalla inn silung og bleikju vegna listeríu Neytendur Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Viðskipti innlent Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Neytendur Fleiri fréttir Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna GK Reykjavík minnkar við sig Minni eignamyndun en fleiri komist í eigið húsnæði með nýrri lausn á markaði Kristján lætur af störfum hjá Samherja Steinar Waage opnar á Akureyri Tekur við stöðu markaðsstjóra Kadeco Möguleiki á að verndaraðgerðirnar verði felldar fyrr úr gildi Sýn fær flýtimeðferð Ístak byggir Fossvogsbrú Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Íslandsbanki lækkar vexti Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Bentu hvor á annan og hlutu ólík örlög Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Fyrrverandi forseti Hæstaréttar fer yfir svör gervigreindarinnar Indó ríður á vaðið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin Sjá meira