Vandræði Chelsea halda áfram Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. september 2023 14:57 Bournemouth og Chelsea skiptu stigunum á milli sín. Justin Setterfield/Getty Images Chelsea og Bournemouth gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust á Vitality-vellinum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Bæði lið fengu fínustu færi til að skora, en það eru gestirnir í Chelsea sem naga sig líklega í handabökin eftir leikinn. Nicolas Jackson átti til að mynda skot í stöng í fyrri hálfleik áður en aukaspyrna Raheem Sterling hafnaði í samskeytunum og skoppaði af marklínunni snemma í síðari hálfleik. Levi Colwill tók frákastið eftir aukaspyrnuna og skoraði, en var réttilega dæmdur rangstæður. Heimamenn fengu einnig sín færi til að stela sigrinum, en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan varð markalaust jafntefli. Chelsea situr í 14. sæti deildarinnar með aðeins fimm stig eftir fimm leiki og liðið hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu. Bournemouth situr hins vegar sæti neðar með þrjú stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti