Innlent

Uppfylltu skotpróf MAST og með hval í sigtinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, getur fagnað því að bæði hvalveiðiskipin mega veiða hval. Hvalveiðiskipin skjóta ekki marga hvali í viðbót í ár enda vertíðinni að ljúka vegna erfiðra veiðiskilyrða.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, getur fagnað því að bæði hvalveiðiskipin mega veiða hval. Hvalveiðiskipin skjóta ekki marga hvali í viðbót í ár enda vertíðinni að ljúka vegna erfiðra veiðiskilyrða. Vísir/Vilhelm

Hvalveiðiskipið Hvalur 8 er aftur haldið til veiða eftir að Matvælastofnun aflétti tímabundnu banni við veiðunum. Skotæfing til að sýna fram á hæfni skyttna á skipinu gekk vel í gær.

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir að skotæfingin hafi gengið vel í gær.

„Menn kunna þetta alveg,“ segir Kristján. Hvalur 8 sé búinn að veiða einn hval og á eftir öðrum, á öðrum tímanum í dag. Hvalveiðiskip Hvals hf. geta mest veitt tvo hvali áður en sigla þarf til hafnar í Hvalfirði.

Hvalur 9 veiddi tvo hvali í gær og er í Hvalfirði. Kristján segir leiðindaveður í kortunum þannig að einhver tími líði áður en hann sigli á miðin á nýjan leik.

„Það er mjög umhleypingasamt, ekki alveg það sem við óskum okkur,“ segir Kristján.

Hann segir veiðarnar í gær hjá Hval 9 hafa gengið vel. Katrín Oddsdóttir lögmaður birti mynd á Facebook í dag sem hún segir sýna að hvalur sem veiddur var í gær hafi líklega verið skotinn tvisvar. Kristján þvertekur fyrir það.

„Merkingarnar á hvalnum benda til þess að hann hafi verið skotinn tveimur skutlum og því augljóslega ekki dáið samstundis. Í þessu felst brot gegn lögum um velferð dýra,“ segir Katrín á FB-síðu sinni.CPWF UK

„Það er rangt. Þau sjá það eitthvað illa. Linsunrnar eru orðnar eitthvað skakkar,“ segir Kristján.

Hvalveiðarnar séu háðar góðu veðri og koma verður í ljós handan helgarinnar hvort farið verði aftur til veiða. Óðum styttist í lok vertíðar.

„Nema það geri einhverja blíðu í byrjun október,“ segir Kristján. Ljóst er að aflinn í ár verður í kringum tíu prósent af kvótanum sem telur 160 hvali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×