Erlent

Bein út­sending: Hver fær Nóbels­verð­launin í læknis­fræði?

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynnt verður um nýjan handhafa Nóbelsverðlaunanna í læknisfræði klukkan 9:30.
Tilkynnt verður um nýjan handhafa Nóbelsverðlaunanna í læknisfræði klukkan 9:30. Getty

Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði.

Fréttamannafundurinn fer fram í Stokkhólmi og verður í beinni útsendingu sem fylgjast má með í spilaranum hér fyrir neðan. Hefst fundurinn klukkan 9:30 að íslenskum tíma.

Sænski erfðafræðingurinn Svante Pääbo hlaut Nóbelsverðlaunin í lífefnafræði og læknisfræði á síðasta ári fyrir rannsóknir sínar á erfðamengi útdauðra manntegunda og þróun mannsins. Pääbo starfar við Max Planck-stofnunina í Leipzig í Þýskalandi og hefur sérstaklega rannsakað erfðafræði Neanderdalsmanna.

Greint verður frá því hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í hinum ýmsu flokkum nú í vikunni.

Tilkynnt um handhafa Nóbelsverðlauna 2023

  • Mánudagur 2. október: Lífefna- og læknisfræði
  • Þriðjudagur 3. október: Eðlisfræði
  • Miðvikudagur 4. október: Efnafræði
  • Fimmtudagur 5. október: Bókmenntir
  • Föstudagur 6. október: Friðarverðlaun Nóbels
  • Mánudagur 9. október: Hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×