Seðlabankastjóri hengir bakara fyrir smið Indriði Ingi Stefánsson skrifar 4. október 2023 09:00 Líkt og í samanburðarlöndum hefur verðbólga verið há hér á landi síðustu misseri, en í flestum samanburðarlöndum er farið að rofa til og verðbólga fer hratt lækkandi. Það sama gerist hins vegar ekki hér og við erum enn að glíma við meira en 8% verðbólgu þrátt fyrir að hér séu stýrivextir í hæstu hæðum. Ráðleggingar Seðlabankastjóra Flestir bankastjórar seðlabanka hafa sig lítið frammi í opinberri umræðu, enda skynsamlegt til að viðhalda trúverðugleika. Því er öfugt farið hér. Nýlega tók Seðlabankastjóri að sér að veita fólki ráðgjöf um val á húsnæðislánum ef svo skyldi fara að nýlegar vaxtaákvarðanir gerðu þeim ómögulegt að standa skil á núverandi lánum. Enn furðulegra var að Seðlabankastjórinn ráðlagði fólki beinlínis að færa sig yfir í lánafyrirkomulag sem grefur undan möguleikum Seðlabankans til að hafa áhrif á neyslu með vaxtaákvörðunum Fyrr á árinu gekk Seðlabankastjóri fram og var mjög harðorður gagnvart verkalýðshreyfingunni fyrir að semja um launahækkanir sem þó náðu ekki að halda í við verðbólgu. Það er kannski ekki skrítið að fólk velti fyrir sér á hvaða grundvelli Seðlabankastjóri leyfi sér slík afskipti og enn fremur hvaða umboð hann hafi til þess. Hátt húsnæðisverð Þrátt fyrir að síðustu mánuði hafi húsnæðisverð gefið aðeins eftir hefur húsnæði síðustu áratugi hækkað langt umfram laun og verðlag. Frá aldamótum hefur húsnæðisverð sjöfaldast og síðan í ágúst 2020 hefur það hækkað um 45% Sömu tölur fyrir vísitölu neysluverðs eru að frá aldamótum hefur verðlag þrefaldast og frá ágúst 2020 hefur verðlag hækkað um 23%. Fyrir vísitölu neysluverðs án húsnæðis er hækkunin mun minni eða 19%. Það er því alveg ljóst að húsnæðisverð bæði hækkar langt umfram verðlag og sú umframhækkun bætir mjög við verðbólgu. Við munum því varla ná tökum á verðbólgu án þess að ná tökum á húsnæðisverði, í það minnsta meðan húsnæðisverð er inni í vísitölunni. Þriggja herbergja íbúð í miðbænum á 35 milljónir Setjum hlutina í samhengi: í febrúar árið 2000 var auglýst til sölu hæð og ris við Grettisgötu á 11,3 milljónir. Í dag er auglýst til sölu 133 fm hæð og ris við Grettisgötu á 90 milljónir. Laun hafa vissulega fimmfaldast á sama tíma, hefði fasteignaverð hins vegar bara fimmfaldast væri þessi eign á 64 milljónir og þriggja herbergja íbúðin við Grettisgötu sem er sömuleiðis auglýst til sölu væri á 35 milljónir í stað 52 milljóna. 109 milljarðar Á síðasta ári högnuðust skráð fyrirtæki í kauphöllinni um 109 milljarða og árið 2021 hagnaðist Alma leigufélag um 12,4 milljarða. Þessi hagnaður félaga kallaði hins vegar ekki á sömu viðbrögð Seðlabankastjóra. Það er því ekki úr vegi að fólk velti fyrir sér hvort verðbólguna megi rekja til græðgi launþega eða hvort mögulega sé hægt að rekja hana til annarra þátta. Viðskiptabankarnir einir og sér taka til sín tugi milljarða á hverju ári. Þegar slík uppgjör birtast heyrist lítið frá Seðlabankastjóra. Það þýðir ekki að hengja bakara fyrir smið Það er óskiljanlegt að Seðlabankastjóri ætli að setja ábyrgðina á verðbólgunni á verkalýðshreyfinguna en láta ótalin ofsahagnað fyrirtækja sem eru mörg hver að skila mjög hagstæðum uppgjörum. Þess fyrir utan ætti bankinn að horfa til þess hvaða áhrif eigin vaxtahækkanir hafa. Sértækar aðgerðir bankans koma hvað harðast niður á fyrstu kaupendum og tekjulágum eins og skilyrði um hámarkshlutfall lána af ráðstöfunartekjum. Okkur hefur einfaldlega mistekist það verkefni að tryggja að nægjanlega mikið af húsnæði sé byggt til að veita öllu fólki öruggt þak yfir höfuðið. Bygging húsnæðis er mjög háð fjármagni og því vinnur hátt vaxtastig gegn því markmiði og fyrirséð að næstu misseri verður lítið byggt og verktakar munu jafnvel lenda í miklum vandræðum með að selja þær eignir sem þegar hafa verið byggðar vegna fjármögnunarvanda kaupenda. Hvað er til ráða? Það kann að hljóma frekar ógeðfelt en ein leið til að koma á jafnvægi væri að ekki reyna að koma hömlum á verðbólguna, með því að leyfa verðlagi að hækka umfram húsnæði væri hægt að nota verðbólguna til að færa húsnæðisverði nær þróun launa síðustu áratuga. Það er vissulega hvorki æskilegt eða heppilegt en þegar það eru engar góðar leiðir eftir getum við þurft að fara þær slæmu. Það verður þó ómögulegt ef stór hluti lána er verðtryggður. Vegna mikillar skuldsetningar getur húsnæðisverð ekki lækkað verulega án þess að stór hluti húsnæðiseigenda verði annað hvort tæknilega eða raunverulega gjaldþrota, því myndi slík lækkun óhjákvæmilega kalla á einhvers konar mótvægisaðgerðir. Það er alveg ljóst að íslenskt samfélag þolir það ekki mikið lengur að ungt fólk geti ekki komið þaki yfir höfuðið. Það verður að vera forgangsmál að vinda ofan af þeirri stöðu. Það verður líka að skapa umhverfi þar sem við byggjum jafnt og þétt, því náum við aldrei með háu vaxtastigi. Það er líka ekkert annað en grimmd að kollvarpa aðstæðum fólks sem tók á sínum tíma ábyrga afstöðu um að kaupa húsnæði og veðjaði á Ísland sem íverustað. Á sama tíma eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar engin, Við höfum ekki efni á að hafa hér ríkisstjórn sem gerir ekkert í þessu, ekki í 2 mánuði og ekki í 2 ár, hvað þá lengur. Það er löngu ljóst að við verðum að fara að skoða aðra kosti eins og til dæmis upptöku annars gjaldmiðils með lægri vöxtum, óháð öllu öðru verðum við að fara í stóruppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, innan og utan höfuðborgarsvæðis og strax ætti að hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnulið aftur í 60%. Auk þess verðum við að taka til greina áhrif þeirra aðgerða sem gripið er til á húsnæðisverð frekar en áhrifa þeirra á verðlag, við einfaldlega höfum ekki efni á öðru. Það sem við getum ekki gert er að skella skuldinni á verkalýðinn sem er að reyna að aðlaga sig að vonlausu húsnæðisverði. Við verðum að skila skuldinni þangað sem hún á heima: til aðgerðalausrar ríkisstjórnar, Seðlabanka sem spáir ekki í húsnæðisverð og fyrirtækja sem skila núna methagnaði. Að lokum fyrir ykkur sem voruð ekki búin að fatta það. Það eru við fólkið í landinu, sem eru bakarinn. Höfundur er varaþingmaður Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Indriði Stefánsson Píratar Húsnæðismál Fasteignamarkaður Seðlabankinn Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa Skoðun