Sigvaldi skoraði átta í Meistaradeildinni | Magdeburg vann sinn annan sigur í röð Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. október 2023 21:29 Sigvaldi Björn Guðjónsson raðaði inn mörkum fyrir Kolstad í kvöld. Sanjin Strukic/Pixsell/MB Media/Getty Images Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæsti maður vallarins er norska liðið Kolstad vann öruggan 13 marka sigur gegn Pick Szeged í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld. Í B-riðli vann Íslendingalið Magdeburg svo góðan sigur gegn Wisla Plock.
Sigur Sigvalda og félaga í Kolstad var í raun aldrei spurning er liðið tók á móti Pick Szeged. Heimamenn í Kolstad skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins og náðu fljótlega sex marka forskoti í stöðunni 12-6. Sigvaldi og félagar tóku svo öll völd á vellinum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og leiddu með 13 mörkum þegar komið var að hálfleikshléinu, staðan 24-11. Síðari hálfleikurinn var því hálfgert formsatriði fyrir Kolstad sem hleypti muninum aldri niður fyrir tíu mörk. Heimamenn unnu að lokum öruggan 13 marka sigur, 37-24, og liðið situr nú í fjórða sæti A-riðils með fjögur stig eftir fjóra leiki. Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæsti maður vallarins með átta mörk úr aðeins níu skotum. Þá vann Íslendingalið Magdeburg góðan tveggja marka sigur er liðið heimsótti Wisla Plock. Gestirnir í Magdeburg náðu fimm marka forskoti snemma leiks, en heimamenn klóruðu sig aftur inn í leikinn og munurinn var aðeins tvö mörk í hálfleik, staðan 12-14. Munurinn í síðari hálfleik varð svo aldrei meiri en þrjú mörk og um tíma skiptust liðin á að hafa forystuna. Það voru þó að lokum Evrópumeistararnir í Magdeburg sem unnu nauman tveggja marka sigur, 26-28. Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg í kvöld, en Janus Daði Smárason komst ekki á blað. Magdeburg situr nú í fjórða sæti B-riðils með fjögur stig, en liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum riðlakeppninnar.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Enski boltinn Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti Dagskráin í dag: Sunnudagur til sælu Sport „Hef ekki verið nægilega góður í sumar“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-2 | Fundinn: Jónatan Ingi Íslenski boltinn Sjáðu lygilegar lokamínútur á Meistaravöllum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Sjá meira