Þorvaldur er nýr tæknistjóri Miðeindar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2023 12:17 Þorvaldur Páll Helgason er nýr tæknistjóri Miðeindar. Þorvaldur Páll Helgason hefur gengið til liðs við Miðeind, hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur að máltækni og gervigreind fyrir íslensku. Hann tekur við starfi tæknistjóra (CTO) og hefur yfirumsjón með tækni- og vöruþróun fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar kemur fram að Þorvaldur hafi áður starfað í Bretlandi, síðast hjá Apple við máltækniþróun Siri sem stjórnandi gervigreindarteymis. Hann er með MSc-gráðu í gervigreind frá Edinborgarháskóla ásamt BSc-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. „Það er mikill fengur að því fyrir Miðeind og íslenska máltækni að fá Þorvald til liðs við okkur,“ segir Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar. „Reynsla hans frá Apple og þekking á notkun gervigreindar, meðal annars á sviði talgreiningar og fyrirspurnakerfa, nýtist okkur við þá hröðu vöruþróun sem framundan er.“ Þá kemur fram að, þar að auki hefur Kári Steinn Aðalsteinsson bæst við starfsmannahóp Miðeindar sem almennur forritari með sérstaka áherslu á notendaupplifun og vefforitun. Miðeind hefur frá árinu 2015 unnið að gerð hugbúnaðar á sviði máltækni og gervigreindar fyrir íslensku. Meðal vara fyrirtækisins eru snjall-aðstoðar-appið Embla, málrýni-verkfærið Yfirlestur.is, þýðingarvélin Vélþýðing.is og krossgátu-appið Explo. Miðeind hefur verið stór þátttakandi í máltækniáætlun stjórnvalda og vinnur nú að ýmsum tengdum verkefnum með íslenskum fyrirtækjum. Þá hefur fyrirtækið unnið með OpenAI að íslenskustuðningi í gervigreindarlíkaninu GPT-4.
Vistaskipti Mest lesið Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Neytendur Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Viðskipti innlent Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Samstarf Fleiri fréttir Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn Sjá meira