Innlent

Bein út­sending: Engin orku­sóun

Árni Sæberg skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setur kynningarfundinn.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setur kynningarfundinn. Stöð 2/Arnar

Landsvirkjun, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Orkustofnun hafa látið vinna ítarlega skýrslu um orkunýtni á Íslandi. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar í beinu streymi.

Kynningarfundurinn hefst klukkan 13:30 og hann má sjá í beinu streymi í spilaranum hér að neðan:

Í fréttatilkyunningu um viðburðinn segir að markmiðið hafi verið að varpa ljósi á tækifæri til bættrar orkunýtni hér á landi. Kortlagðar hafi verið þær aðgerðir sem eru tæknilega og fjárhagslega framkvæmanlegar.

Danska ráðgjafarstofan Implement hafi unnið skýrsluna, en hún búi yfir mikilli sérfræðiþekkingu á orkumálum og orkunýtni.

Á streymisfundi verðir farið yfir helstu niðurstöður skýrslunnar og hvað þær þýða fyrir orkumál.

Dagskrá fundarins:

  1. 13:30 Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, opnar fundinn.
  2. 13:40 Hvað er orkunýtni? Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsbreytinga og nýsköpunar hjá Orkustofnun.
  3. 13:50 Fugl í hendi - verðmætin í minni sóun - Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og grænna lausna hjá Landsvirkjun.
  4. 14:00 Tækifæri til bættrar raforkunýtni á Íslandi, Martin Bo Hansen, meðeigandi Implement og sérfræðingur í orku- og loftslagsmálum kynnir niðurstöður greiningar á tækifærum til bættrar raforkunýtni á Íslandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×