Strangt þak á kaupauka hefur leitt til hærri launa í fjármálakerfinu
Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað, segja stjórnendur fjármálafyrirtækja. Það eykur rekstraráhættu fyrirtækjanna, einkum þeirra minni.
Tengdar fréttir
FME setur smærri fjármálafyrirtækjum stólinn fyrir dyrnar
Túlkun Fjármálaeftirlitsins á reglum um kaupaukakerfi þýðir í reynd að fjármálafyrirtæki eiga þess ekki lengur kost að umbuna lykilstarfsfólki með greiðslu arðs af B-hlutabréfum sem tekur mið af afkomu hvers árs.