Grafni laxinn inn á 30.000 heimili hver jól Norðanfiskur 15. desember 2023 08:30 Óhætt er því að segja að talsverðar líkur séu á að gestum verði boðið upp á grafinn lax frá Norðanfiski í matarboðum kringum jólin og ekki að ástæðulausu. Norðanfiskur hefur í tuttugu ár sett svip sinn á jólahald Íslendinga. „
Það fara yfir átta tonn af gröfnum laxi frá okkur í desember og það á einungis við um hálf flök. Eitthvað fer líka í bitum og svo fara heil flök í heildsölurnar. Við erum nánast söluhæst í gröfnum laxi á landinu en í heildina eru þetta fimmtán tonn af gröfnum laxi í desember mánuði,“ segir Hugrún Sigurðardóttir, framleiðslustjóri Norðanfisks en fyrirtækið hefur í tuttugu ár framleitt reyktan, grafinn og heitreyktan lax fyrir innanlandsmarkað auk ljúffengu jólasíldarinnar. Óhætt er því að segja að talsverðar líkur séu á að gestum verði boðið upp á grafinn lax frá Norðanfiski í matarboðum kringum jólin, og það ekki að ástæðulausu. Galdurinn á bak við vinsældirnar segir Hugrún liggja í uppskriftinni og þar beitir hún ákveðnu leynivopni. Hið fullkomna hlutfall „Ég nota brúnan sykur meðan flestir nota hvítan, þá nota ég bæði grænt dill og brúnt þurrkað dill, meðal annars. Uppskriftin er hátt í 40 ára gömul og má rekja til þeirra Eric Calmon og Gunnlaugs Guðmundssonar matreiðslumeistara sem stofnuðu Íslenskt franskt eldhús á sínum tíma. Ég stýrði framleiðslunni fyrir þá og hef ekki breytt einu grammi í uppskriftinni í öll þessi ár,“ segir Hugrún. „Við erum búin að finna okkar blöndu og í hvernig hlutföllum hún reynist best. Fólk getur gengið út frá því vísu að fá alltaf sama bragðið þegar það kaupir vörurnar okkar.“ „Uppskriftin á bak við jólasíldina er rótgróin og mikið leyndarmál. Við notum ávallt nýja síld en ekki frosna og hún hefur algjörlega slegið í gegn,“ segir Hugrún Sigurðardóttir, framleiðslustjóri Norðanfisks. Heitreyktur lúxus Heitreykti laxinn frá Norðanfiski nýtur einnig mikilla vinsælda en styttra er síðan íslenskir neytendur fengu að kynnast honum. Hugrún segir vandasamt ferli á bak við framleiðsluna og til að byrja með var hann einungis framleiddur til útflutnings. Þá hefur jólasíldin frá Norðanfiski slegið í gegn. „Uppskriftin á bak við jólasíldina er rótgróin og mikið leyndarmál. Við notum ávallt nýja síld en ekki frosna og hún hefur algjörlega slegið í gegn. Grafni laxinn er alltaf bestur á snittubrauði með graflaxsósu og heitreykta laxinn er gaman að bera fram á salatbeði.“
Jól Jólamatur Lax Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira