Fá brjóstamjólk frá Serenu Williams Sindri Sverrisson skrifar 21. desember 2023 16:02 Serena Williams eignaðist sína aðra dóttur í ágúst en átti fyrir Olympiu, sem hún heldur hér á eftir sigur á ASB Classic árið 2020. Getty/Hannah Peters Bandaríska tennisgoðsögnin Serena Williams ákvað að hjálpa þeim sem á þurfa að halda með því að gefa brjóstamjólk sína.
Williams greindi frá því í færslu á Instagram að hún hefði nýverið verið í New York og verið þar með talsvert umframmagn af brjóstamjólk úr sér í kæli, eins og hún sýndi á myndbandi. Þessa mjólk hafi hún getað gefið í stað þess að taka hana heim með sér. Williams, sem er 42 ára og vann 23 risatitla í tennis á sínum glæsta ferli, kveðst afar spennt og ánægð með að geta hjálpað með einhverjum hætti. View this post on Instagram A post shared by Serena Williams (@serenawilliams) „Ég veit um svo margar stórkostlegar konur sem að hafa ættleitt eða geta ekki framleitt mjólk. Þetta var dásamlegt. Og já, einhver þarna úti er að fá algjöra ofurmannamjólk,“ skrifaði Williams. Þau sem á brjóstamjólk þurfa að halda munu ekki hafa getað vitað að hún væri frá Williams. Færsla hennar féll vel í kramið hjá netverjum: „Einhverjir krakkar eru að fá sterkari bakhönd,“ grínaðist einn af þeim sem skrifuðu ummæli við færslu Williams, og annar skrifaði: „Þetta er „Geitar“-mjólk [e. G.O.A.T. Milk].“ Williams eignaðist sína aðra dóttur, Adiru River Ohanian, í ágúst. Fyrra barn þeirra Alexis Ohanian er Alexis Olympia Ohanian Jr., eða Olympia, sem fæddist í september 2017. Williams greindi frá því í septemberhefti Vogue árið 2022 að hún hefði ákveðið að leggja tennisspaðann á hilluna, og að hún vildi einbeita sér meira að fjölskyldu sinni.
Mest lesið „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Liverpool - Crystal Palace | Leita að þriðja sigrinum í röð Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Lést í miðjum leik Fótbolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Íslenski boltinn „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn Viktor Gísli áfram í stuði Handbolti Fleiri fréttir Þriðji sigur Liverpool í röð Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Arsenal - Newcastle | Skytturnar geta endurheimt toppsætið Man. City - Southampton | Dýrlingarnir fá krefjandi verkefni í undanúrslitum Bayern München - Barcelona | Glódís mætir Börsungum Valur - Grindavík/Njarðvík | Nýliðarnir heimsækja Hlíðarenda Þór/KA - FH | Bæði lið tekið töluverðum breytingum Fanney hélt hreinu og Häcken vann fyrri úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Haukar - ÍBV | Sigur eða sumarfrí hjá Haukum Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Formúlan snýr aftur til Tyrklands Viktor Gísli áfram í stuði „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs Lést í miðjum leik Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ Dagskráin í dag: Ensk stórlið, Stólar í Garðabæ og Besta deild kvenna „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ „Ég má ekki segja leyndarmál“ „Til háborinnar fyrirmyndar og ég er ánægður með það“ Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Sjá meira