YouTube-ari leysti tíu ára gamalt mannshvarfsmál Jón Þór Stefánsson skrifar 27. desember 2023 11:37 Bíll Donald Erwin fannst í tjörninni sem sést í hægra horni myndarinnar. Lögreglustjórinn í Camden-sýslu í Missouri Rannsókn bandaríska YouTube-arans James Hinkle varð til þess að líkamsleifar manns, sem hafði verði týndur í tíu ár, fundust í Missouri-ríki Bandaríkjanna.
Rannsakendur og leitarhundar fundu líkamsleifar Donald Erwin á aðfangadag, en hann sást síðast þann 29. desember árið 2013. Það gerðist í kjölfar þess að Hinkle bar á kennsl á bíl Erwin, Hyundai Elantra frá árinu 2002, á botni tjarnar. Fjallað er um málið í fjölmiðlim vestanhafs. Hinkle hefur birt stutt myndband frá leit sinni, en þar sést hann róa á kajak um tjörnina þar sem bíllinn fannst. Hann hafði upp á sínar eigin spýtur byrjað að rannsaka málið og fengið leyfi frá jarðareiganda, sem á jörðina þar sem tjörnina er að finna, til að leita á svæðinu. Hann fann bílinn þann sextánda desember og gerði lögreglu viðvart um málið. Hún dró bílinn á land og leitaði í kjölfar betur í tjörninni og á svæðinu í kringum það. Lögreglan telur næstum því öruggt að um sé að ræða líkamsleifar Erwin, sem var 59 ára þegar hann týndist. Síðast sást til hans í umræddum Hyundai-bíl og þá er líkið með gervimjöðm, líkt og Erwin var með. Fjölskyldu hans hefur verið gert viðvart um fundinn og lögreglan þakkar veitta hjálp í málinu.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Veður „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Erlent „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira