Sex börn með sex konum, óskráð sambúð og fær ekki krónu með gati Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2024 07:00 Konan telur að karlmaðurinn hafi verið spilafíkill. Hann hafi nýtt bensínkort í að kaupa lottómiða sem hafi leit til nokkurra vinninga. Engar upplýsingar lágu fyrir dómnum um kostnað við kaup á miðunum. Vísir/Vilhelm Karlmaður sem sagður er faðir sex barna með jafnmörgum konum fær ekki helming af söluverðmæti fasteignar kærustu sinnar til þrjátíu ára. Hann lagði lítið sem ekkert til heimilishaldsins á sambúðartímanum og vildi ekki vera á launaskrá verslunar konunnar því þá færu peningarnir í meðlag. Hann sagðist meðal annars hafa lagt lottóvinninga til sameiginlegs heimilishalds.
Karlmaðurinn og konan voru í sambandi frá árinu 1992 til ársins 2022 þegar þau fóru í sundur. Gerði karlmaðurinn kröfu um helming allra eigna sem skráðar voru á konuna. Má þar nefna fasteign, vörubirgðir, bankainnistæðu, lífeyrisréttindi, innbú og bíla. Svo fór að karlmaðurinn féll frá öllum kröfum nema þeim að fá helming af um 142 milljónum króna vegna sölu konunnar á fasteign þar sem þau höfðu búið saman. Sagði hafa eignast hlutdeild með vinnuframlagi Konan og karlmaðurinn byrjuðu að búa saman árið 1992. Konan átti þá fasteign og næstu ári og áratugina seldi hún fasteign sína og keypti nýja. Maðurinn flutti með. Þannig gekk það fyrir sig þar til í september 2022 þegar konan seldi raðhús fyrir um 142 milljónir króna. Þá átti konan eignahlutafélag og rak sömuleiðis verslun sem hún rak til ársins 2022. Þá var rekstur verslunarinnar hættur en hún hafði verið rekin með verulegan halla. Karlmaðurinn byggði kröfu sína á vinnuframlagi sínu í versluninni og þátttöku í heimilishaldi. Hann hefði skapað eignamyndun í fasteigninni. Hann hafi tekið fullan þátt í heimilisstörfum, annast viðhald og rekstur á fasteignum, uppbyggingu og umhirðu lóðar. Þau hefðu ætlað að gifta sig árið 2021, verið í samskiptum við lögmann varðandi ráðgjöf en þær ætlanir síðan breyst. Karlmaðurinn kom ekki fyrir dóminn og bar því hallann af því sem ekki taldist sannað með gögnum málsins og gegn framburði konunnar og vitna. Grunsamlegar úttektir á bensínstöðvum Konan staðfesti fyrir dómnum að þau hefðu aldrei verið skráð í sambúð né samsköttuð. Þau hefðu ekki átt börn saman. Fjárhagurinn hefði verið aðskilinn og aðeins haft aðgang að eigin reikningum. Endrum og sinnum hefði karlmaðurinn keypt mat fyrir heimilið sem hefði verið sjálfsagt enda hefði hann búið heima hjá henni. Fram til október 2021 hafi konan greitt ein af lánum, fasteignagjöldum og annan rekstrarkostnað af húsnæði í gegnum árin. Hann hafi búið hjá henni, lagt fé til matarkaupa en ekki einu sinni þurft að borga bensín. Hann hefði fengið bensínkort frá fyrirtæki hennar. Hún sagði úttektir hans á bensínstöðvum fyrir hundruð þúsunda í gegnum árin vekja upp spurningar. Taldi hún líklegt að maðurinn væri spilafíkill. Spilaði mikið í lottóinu Þá sagði konan karlinn aldrei hafa verið í launaðri vinnu þessi þrjátíu ár og ekkert kom fram í gögnum málsins sem sýndi fram á hið gagnstæða. Fyrsta reglulega innkoma mannsins voru greiðslur frá Tryggingastofnun Íslands árið 2017. Rúmlega 230 þúsund krónur í lífeyrisgreiðslur. Karlmaðurinn benti á að hann hefði unnið mikið í lottóinu í gegnum árin. Engar upplýsingar voru um kostnað af getraunaþátttöku mannsins og því erfitt að meta hvort um innkomu til heimilisins. Karlmaðurinn vann nokkrum sinnum í lottóinu. Einu sinni tæplega þrjár milljónir króna, einu sinni á aðra milljón króna en annars lægri vinninga. Ekki var að sjá af bankayfirliti mannsins að peningarnir hefðu farið í annað en einkaneyslu hans sjálfs. Kom stundum niður í kaffi Konan sagði karlmanninn hafa dvalið mikið á efri hæð verslunar hennar í byrjun sambúðar en ekki lagt til neina vinnu nema séð um bókhaldið frá 1995-2008. Þá hafi hann sótt vörur í tollgeymslu en samkvæmt vitnisburði starfsmanns verslunarinnar var það helst tvisvar á ári. Hann hefði komið með vörurnar, sett á gólfið í versluninni en ekki hjálpað að taka þær upp. Konan tók undir það. Starfsmaðurinn sagði karlmanninn hafa verið mikið á efri hæð verslunarinnar en komið niður í kaffi af og til. Hann hefði aldrei starfað við afgreiðslu né á lager. Karlmaðurinn var með yfirlýsingu undirrituð af fólki sem sagði hann hafa sinnt ýmsum störfum í versluninni, við afgreiðslu og á lager, við bókhald og fleira. Starfsfólkið sem bar vitni fyrir dómi sagðist aldrei hafa heyrt þessi nöfn ef frá væri talið eitt sem að líkindum væri bróðir karlmannsins. Dómurinn taldi staðfestingar þessa fjögurra aðila ekki trúverðugar. Vissi ekki af barnaskaranum Þá sagði konan að karlmaðurinn hefði forðast að vera á launaskrá hjá versluninni þar sem hann hefði verið í svo mikilli meðlagsskuld við Innheimtustofnun sveitarfélaga. Hann ætti sex börn með sex konum, sem honum hefði borið að greiða meðlag með. Karlmaðurinn hefði útskýrt að ef hann væri á launaskrá og fengi greidd laun þá myndu þau ganga upp í greiðslur barnsmeðlaga sem hann vildi komast hjá. Konan sagðist ekki hafa verið meðvituð um þessa barnamergð karlmannsins fyrr en eftir að sambúð þeirra hófst. Þá voru einstaka millifærslur upp á nokkur hundruð þúsund krónur frá karlmanninum til verslunarinnar á árinum 2018 til 2020 endurgreiddar með skýringum. Þá hafi greiðslur karlmannsins inn á reikning konunnar, nokkrir tugir þúsunda árið 2022, skráð á heimilið, samkostnað eða samreikning. Var það í samræmi við yfirlýsingu konunnar að þau hefðu komið sér saman um að skipta heimilishaldinu jafnt á milli sín. Hann borgaði konunni það sem konan hafði greitt umfram sóknaraðila þann mánuðinn. Stóð samkomulagið þar til slitnaði upp úr sambúðinni í september 2022. Haldinn spilafíkn? Konan bar upp þá hugleiðingu sína fyrir dómi að karlmaðurinn væri haldinn spilafíkn. Mikill fjöldi úttekt hans með debetkorti merki um kaup á lottómiðum og þá helst á bensínstöðvum fyrir hundruð þúsunda króna. Í niðurstöðum dómsins segir að meginregla við slit óvígðrar sambúðar sé sú að hvor aðili taki með sér þær eignir sem hann átti við upphaf sambúðar eða hafi eignast á meðan henni stóð. Sá sami beri ábyrgð á skuldum sínum. Þá leit dómurinn til þess að fólkið eignaðist ekki saman börn, þau voru aldrei skráð í sambúð, héldu fjárhag algjörlega aðskildum og ósannað var að karlmaðurinn hefði með vinnu sinni lagt fram þá vinnu sem hefði skapað hlutdeild í eignum konunnar. Var kröfu mannsins því hafnað. Hann var dæmdur til að greiða konunni 1,1 milljón króna í málskostnað.
Fjárhættuspil Dómsmál Fjölskyldumál Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Sjá meira