Coote verður VAR-dómari í leik Arsenal og Liverpool þrátt fyrir mistökin síðast Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2024 13:01 David Coote verður í VAR-herberginu þegar Liverpool sækir Arsenal heim á sunnudaginn. getty/Vince Mignott David Coote verður VAR-dómari í leik Arsenal og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Coote var VAR-dómari í fyrri leik liðanna sem endaði með 1-1 jafntefli. Umdeildasta atvik leiksins kom í fyrri hálfleik þegar Martin Ødegaard, fyrirliði Arsenal, fékk boltann í höndina innan vítateigs. Chris Kavanagh, dómari leiksins, dæmdi ekki vítaspyrnu og Coote var sammála því og lét Kavanagh ekki líta aftur á atvikið. Stuðningsmenn Liverpool voru afar ósáttir við Kavanagh og Coote og Howard Webb, yfirmaður dómaramála á Englandi, viðurkenndi seinna að dómarar leiksins hefðu ekki komist að réttri niðurstöðu í umræddu atviki. Anthony Taylor verður dómari í leiknum á Emirates á sunnudaginn en Coote verður sem fyrr segir í VAR-herberginu. Arsenal vann 1-2 sigur á Nottingham Forest í gær og minnkaði þar með forskot Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í tvö stig. Liverpool getur endurheimt fimm stiga forystu á toppnum með sigri á Chelsea í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Fleiri fréttir Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Sjá meira