Heiðursstúkan: „Ég hef komið áður og ég hef alltaf tapað“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2024 08:31 Kjartan Atli Kjartansson og Sigurður Orri Kristjánsson háðu harða keppni í Heiðursstúkunni. S2 Sport Það er Stjörnuhelgi NBA deildarinnar fram undan á Stöð 2 Sport og tveir af öflugustu NBA-sérfræðingum Stöðvar 2 Sports mættu í Heiðursstúkuna og spreyttu sig á alls konar spurningum tengdum stjörnuhelginni og NBA.
Heiðursstúkan er sportspurningaþáttur í umsjón Jóhanns Fjalars Skaptasonar þar sem eitt þema er tekið fyrir í hverjum þætti. Í sjötta þætti af seríu tvö, sem sjá má hér að neðan, mættust þeir Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi Lögmálsins á Stöð 2 Sport 2, og einn af sérfræðingum hans þar, Sigurður Orri Kristjánsson. Þriggja stiga keppnin, troðslukeppnin og allar hinar þrautakeppninnar verða sýndar beint á Stöð 2 Sport 2 frá klukkan eitt eftir miðnætti á morgun, laugardag. „Að þessu sinni erum við að heiðra All-Star leikinn sem fer fram um helgina. Að því tilefni höfum við fengið sannkallaða heiðursmenn í settið til mín,“ sagði Jóhann Fjalar Skaptason og kynnti þá Kjartan og Sigurð til leiks. „Ég er stressaður,“ sagði Kjartan Atli og Sigurður Orri tók undir það. „Ég hef komið áður og ég hef alltaf tapað,“ sagði Sigurður Orri. „Þú ert að fara að ná í fyrsta sigurinn þinn hér. Ég er ekki góður í spurningakeppnum,“ sagði Kjartan Atli. Þeir ræddu Stjörnuleikinn, nostalgíu honum tengdum og þá sérstaklega í tengslum við þriggja stiga keppnina og troðslukeppnina. Þeir félagar hófu síðan keppnina og hana má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Heiðursstúkan: Hvað vita Kjartan Atli og Sigurður Orri um NBA?
NBA Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Sjá meira